Norrænn fundur hópbifreiðasamtaka í Kaupmannahöfn

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum var farið yfir helstu mál er tengjast umferð og rekstri hópbifreiða á Norðurlöndunum, bæði í bókuðum ferðum og almenningssamgöngum. Þar var rætt um breytingar á ýmsum Evrópureglugerðum, eftirfylgni með banni við ólöglegum gestaflutningum og öryggismál ásamt þróun sjálfkeyrandi hópbifreiða í almenningssamgöngum. Þá var einnig farið yfir rekstrarumhverfi hópbifreiða í hverju landi. Þessir fundir eru afar gagnlegir þar sem miðlun upplýsinga á milli landa getur stuðlað að og stutt við jákvæðar breytingar á rekstrarumhverfi fyrirtækjanna.

Þá minna SAF félagsmenn í rekstri hópbifreiða á árlegan notendafund með Samgöngustofu þann 16. september nk. en skráningu á fundinn má finna hér.

Tengdar fréttir

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …