Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna telur ferðaþjónustu hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins tæp 12% telja áhrifin neikvæð. Þetta kemur fram í könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir SAF fyrr á árinu og niðurstöðurnar sýna því afgerandi jákvætt viðhorf til áhrifa ferðaþjónustu á samfélagið.

Viðhorfið yfirgnæfandi jákvætt í öllum landshlutum

Niðurstöðurnar sýna að viðhorf til mikilvægis ferðaþjónustu í samfélaginu er yfirgnæfandi jákvætt óháð búsetu, en í öllum landshlutum er skýr meirihluti þeirrar skoðunar að ferðaþjónusta hafi haft jákvæð áhrif á samfélagið.

Hlutfall þeirra sem meta áhrifin jákvæð er hæst á Norðurlandi, eða 76,9%, en  73,2% á Austurlandi, 72,8% á Vesturlandi og Vestfjörðum og 71,4% á Suðurlandi og Reykjanesi. Í Reykjavík er hlutfallið 70,0% og í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur 68,8%.

Jákvætt viðhorf til áhrifa ferðaþjónustunnar á samfélagið er því útbreitt um allt land þótt vægi greinarinnar og umfang sé mismunandi eftir svæðum.

Sterkur samfélagslegur stuðningur við öfluga ferðaþjónustu

Ferðaþjónusta hefur á undanförnum árum orðið stærsta útflutningsgrein landsins og reynst afar mikilvæg lyftistöng fyrir atvinnu- og byggðaþróun í nærsamfélögum um allt land. Niðurstöður könnunarinnar sýna að almenningur um allt land metur þessi áhrif greinarinnar á íslenskt samfélag yfirgnæfandi jákvæð.

Niðurstöðurnar könnunarinnar senda mikilvæg skilaboð til bæði stjórnvalda og fyrirtækja í greininni sjálfri:

„Það er mjög ánægjulegt að sjá hversu afgerandi meirihluti landsmanna telur ferðaþjónustuna hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Sérstaklega er athyglisvert að sjá svo jákvætt viðhorf ríkjandi skoðun um allt land. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að stjórnvöld og atvinnugreinin taki höndum saman um aðgerðir sem geta stækkað ferðaþjónustukökuna, til að skapa enn meiri verðmæti og atvinnutækifæri fyrir samfélög um allt land,“ segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri SAF.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu dagana 7.-12. maí 2026.

Tengdar fréttir

Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …