Stjórn SAF lýsir þungum áhyggjum af áhrifum boðaðs verkfalls flugvirkja

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair.

Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið fjölda afbókana og fyrirspurna um niðurfellingu, endurgreiðslu og frestun ferða og neikvæð áhrif eru því þegar hafin. Alvarleg röskun á allri virðiskeðju atvinnugreinarinnar blasir við verði verkfallið að veruleika.

Íslensk ferðaþjónusta og verðmætasköpun greinarinnar fyrir samfélagið byggir á öruggum og fyrirsjáanlegum flugsamgöngum. Þegar þeim er ógnað með verkfallsaðgerðum af þessu tagi eru afleiðingarnar ekki bundnar við deiluaðila heldur lenda þær á þúsundum ferðamanna og hundruðum fyrirtækja um allt land sem eiga enga aðkomu að deilunni. Tekjutapið getur hlaupið á milljörðum á örfáum dögum og tjónið á orðspori Íslands sem áreiðanlegs áfangastaðar getur varað mun lengur.

Þá er ljóst að ótímabundið verkfall sem lokar lífæð stærstu útflutningsgreinar landsins veldur samfélaginu öllu alvarlegu efnahagslegu tjóni. Slíkt tekjutap hefur ekki aðeins áhrif á fyrirtæki og starfsfólk í greininni heldur einnig á tekjur ríkissjóðs og þar með svigrúm samfélagsins til að standa undir opinberri þjónustu og öðrum sameiginlegum verkefnum.

Stjórn SAF leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að boðað verkfall verði ekki að veruleika og að samningsaðilar leggi allt kapp á að ná samkomulagi áður en til þess kemur. Takist ekki samkomulag krefjast almannahagsmunir þess að stjórnvöld grípi inn í til að afstýra stórtjóni fyrir ferðaþjónustuna, atvinnulífið og íslenskt samfélag í heild.

Tengdar fréttir

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …

Yfirlýsing frá Samtökum ferðaþjónustunnar Samtök ferðaþjónustunnar skora á stjórnvöld að eiga jákvætt samtal við fulltrúa greinarinnar um hvernig blómstrandi ferðaþjónusta getur skilað enn stærri …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24%. Breytingin veikir samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu, eykur óvissu í …