Daníel Pétur hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. Ritgerðin var unnin til MA-prófs í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum undir leiðsögn Laufeyjar Haraldsdóttur.

Í ritgerðinni rannsakar Daníel samband Síldarminjasafns Íslands við nærsamfélagið á Siglufirði. Hann skoðar hvernig ólíkir hópar íbúa tengjast safninu, hvaða merkingu það hefur fyrir Siglufjörð og hvernig styrkja megi tengsl safnsins við nærsamfélagið. Ritgerðin dregur þannig fram hvernig safnið er bæði hluti af daglegu lífi, sögu og sjálfsmynd Siglufjarðar um leið og það gegnir mikilvægu hlutverki sem áfangastaður ferðamanna.

Að mati dómnefndar er ritgerðin vel skrifuð, skýr og faglega unnin. Hún beinir sjónum að tengslum safnsins við ólíka hópa í nærsamfélaginu og sýnir hvernig virkt samband við íbúa getur aukið gildi safnsins bæði sem menningararfsstofnunar og hluta af áfangastaðnum Siglufirði.

Lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF eru veitt fyrir framúrskarandi lokaverkefni sem fjalla um ferðamál og ferðaþjónustu á Íslandi. Kallað var eftir tilnefningum frá háskólum landsins en markmið verðlaunanna er að vekja athygli á vönduðum rannsóknum ungs fræðafólks og mikilvægi nýrrar þekkingar fyrir ferðaþjónustu. Í dómnefnd sátu Hafdís Björg Hjálmarsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, Vilborg Helga Júlíusdóttir, fyrrverandi hagfræðingur SAF og Eyrún Jenný Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá RMF.

Tengdar fréttir

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …