Umhverfisfyrirtæki ársins 2026 – Opnað fyrir tilnefningar

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavík Grand frá kl. 13:00-15:15 og verður skráning auglýst fljótlega. Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SAF, SI, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Hægt er að senda inn tilnefningar til Umhverfisfyrirtæki ársins 2026 til og með 10. október. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem skarar fram úr í umhverfis- og loftlagsmálum og sýnir í verki hvernig árangur næst með markvissum aðgerðum, nýsköpun og ábyrgri stjórnun.

Hér er hægt að senda inn tilnefningu.

Nauðsynlegt er að skila inn rökstuðningi fyrir eftirfarandi þætti:

  • Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi.
  • Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni, til dæmis: hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel.
  • Gengur lengra en lög og reglur segja til um að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið.
  • Hefur sett sér aðgerðaráætlun í umhverfismálum sem inniheldur töluleg og tímasett markmið til þess að draga markvisst úr umhverfisáhrifum starfsemi fyrirtækisins.
  • Hefur sett sér sjálfbærnistefnu og birt opinberlega, ásamt því að birta markmið og árangur sem náðst hefur.
  • Getur sýnt fram á að umhverfismál hafi áhrif á ákvarðanatöku og að fyrirtækið þekki helstu áhættur og tækifæri sem tengjast umhverfismálum.

Samtök ferðaþjónustunnar hvetja félagsmenn sína til að senda inn tilnefningu og mæta á Umhverfisdag atvinnulífsins þann 27. október.

Senda inn tilnefningu til Umhverfisfyrirtækis ársins 2026

Tengdar fréttir

Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …