SAF leita eftir nýjum framkvæmdastjóra

[:IS]Samtök ferðaþjónustunnar óska eftir að ráða framkvæmdastjóra. Starfið er krefjandi og fjölbreytt leiðtogastarf. Þörf er á öflugum einstaklingi sem er tilbúinn að leggja sitt af mörkum við að leiða áframhaldandi uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu.
Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Talsmaður SAF
  • Dagleg stjórnun og rekstur SAF
  • Eftirfylgni ákvörðunar stjórnar, stefnu og aðgerðaráætlun SAF
  • Samskipti við hagsmunaaðila, stjórnvöld, fjölmiðla og félagsmenn
  • Kynningarmál og samskipti við fjölmiðla
  • Gerð kjarasamninga í samvinnu við SA

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Víðtæk þekking og reynsla af rekstri og stjórnun
  • Frumkvæði, metnaður, sjálfstæði og agi í vinnubrögðum
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Þekking á kjaramálum er kostur
  • Leiðtogahæfni
  • Færni í að greina og miðla upplýsingum
  • Traust og trúverðug framkoma
  • Góð færni í íslensku og ensku

Upplýsingar veitir:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. mars nk.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
 
[:]

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …