[:IS]Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir fundi um bestu starfshætti varðandi öryggismál og viðbrögð við óvæntum atburðum sem kunna að koma upp í ferðaþjónustu.
Fundurinn fer fram mánudaginn 14. maí í Húsi atvinnulífsins og stendur á milli kl. 10 og 11.30.
- Skráning fer fram HÉR.
Dagskrá:
- Hvernig tryggjum við gott ferðalag?
Karlotta Halldórsdóttir, verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá - Að vera viðbúinn – Öryggis- og viðbragðsáætlanir
Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri slysavarnarmála hjá Landsbjörg - Ábyrgð rekstraraðila og lagaramminn
Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður hjá LEX lögmannsstofu - Allt í volli, hvað svo?
Karen Kjartansdóttir, ráðgjafi hjá Aton
Særún Ósk Pálmadóttir, ráðgjafi hjá Aton - Umræður
Fundarstjóri verður Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar.

Eru félagsmenn hvattir til að mæta, hlýða á áhugaverð erindi og taka þátt í umræðum.
- Skráning fer fram HÉR.
Þeir sem ekki hafa tök á að mæta á fundinn geta fylgst með honum í beinni útsendingu á heimasíðu Samtaka ferðaþjónustunnar – www.saf.is[:]