[:IS]Þriðjudaginn 11. september 2018 munu Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir félagsfundi um stöðu ferðaþjónustunnar með tilliti til lífskúrfu og efnahagsmála.
Fundurinn fer fram í salnum Hyl á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, og hefst kl. 8.30.
DAGSKRÁ:
- Lykiltölur í ferðaþjónustu // Vilborg Helga Júlíusdóttir, hagfræðingur SAF
- Staða ferðaþjónustu á lífshlaupskúrfunni // Anna Dóra Sæþórsdóttir, prófessor í ferðamálafræðum við HÍ
- Staða ferðaþjónustu í efnahagslífinu // Gylfi Zoega, prófessor við HÍ
Fundarstjóri verður Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF
BEIN ÚTSENDING:
Fyrir þá sem ekki hafa tök á að mæta á fundinn verður hann sendur út í beinni útsendingu. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu á heimasíðu SAF eða með því að smella HÉR.
SKRÁNING:
Skráning á fundinn fer fram HÉR.[:]