[:IS]Fyrsti hópur sem lauk raunfærnimati á móti hæfnikröfum starfa útskrifaðist þ.22.2. frá IÐUNNI fræðslusetri. Fimm þátttakendur luku raunfærnimatinu fyrir þernur og stóðu sig með mikilli prýði.
Allar þernurnar starfa hjá Center hotels og var verkefnið unnið í samvinnu við hótelið. Útskriftin fór fram á Center hotels þar sem þátttakendur fengu afhent hæfniskírteini og hótelið bauð upp á veitingar í tilefni dagsins.
IÐAN óskar þátttakendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þakkar fyrir gott samstarf.
Smelltu hér til að fá ráðgjöf í raunfærnimati[:]
Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …