Hörð gagnrýni í umsögn SAF um fjármálaáætlun 2027–2031

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF alvarlegar athugasemdir við fyrirhuguð áform stjórnvalda gagnvart ferðaþjónustunni og kalla eftir meira fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi atvinnugreinarinnar.

SAF gagnrýna sérstaklega boðaða hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum og fyrirhuguð ný heildarlög um gjaldtöku á ferðamannastöðum. Samtökin telja að áformin geti dregið úr samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu, aukið óvissu og haft neikvæð áhrif á verðmætasköpun og atvinnu, sérstaklega á landsbyggðinni.

Í umsögninni benda SAF meðal annars á að ferðaþjónusta sé stærsta útflutningsgrein landsins, hafi skapað um 31 þúsund störf árið 2025 og skilað um þriðjungi af heildarútflutningstekjum Íslands.

SAF kalla eftir því að fallið verði frá hækkun virðisaukaskatts á baðlón og að ný gjaldtaka á ferðamannastöðum verði útfærð með skynsamlegum hætti, í fullu samráði við atvinnugreinina og með tilliti til þeirra skatta og gjalda sem þegar eru til staðar.

Hér að neðan má nálgast umsögn SAF um fjármálaáætlun ásamt samantekt samtakanna.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …