Ferðaþjónustan hefur skýra framtíðarsýn um menntun

[:IS]Hæfnisetur ferðaþjónustunnar kynnti í dag niðurstöður samtals atvinnulífs og menntakerfis um framtíðarskipan náms í ferðaþjónustu. Í samtalinu tóku þátt hagaðilar í ferðaþjónustu, stjórnendur og starfsfólk fyrirtækja, fulltrúar aðila atvinnulífsins, auk stjórnenda og starfsfólks skóla og fræðsluaðila. Skýrslan, Hæfni er grunnur að gæðum, sem kynnt var í dag er innlegg atvinnulífsins í mótun mennta- og hæfnistefnu fyrir ferðaþjónustu. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, og mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir ávörpuðu fundinn.
Meginniðurstaða samtalsins er sú að allir aðilar sem komu að vinnunni, skólar, fræðsluaðilar, stéttarfélög og atvinnurekendur, eru sammála um að:

  1. Atvinnulíf og menntakerfi vilja vinna saman
  2. Þörf er á breytingum á námsframboði
  3. Raunfærnimat verði útbreidd og viðurkennd aðferð til að meta hæfni
  4. Vottun á námi/hæfni verði á öllum þrepum og slík vottun hafi gildi á vinnumarkaði og í frekara námi

Hæfnisetrið þakkar öllum þeim sem tóku þátt í samtalinu dag og vinnur úr þeim athugasemdum og hugmyndum sem bárust.
Á mynd: María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF og formaður stjórnar Hæfnisetursins, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri FA, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
 [:]

Tengdar fréttir

Á dögunum fór fram fundur Nordisk Besöksnaring, samstarfsvettvangs norrænnar ferðaþjónustu, á Íslandi en þar tóku Samtök ferðaþjónustunnar á móti forsvarsmönnum ferðaþjónustusamtaka á …

Ný skýrsla SAF um samanburð á regluverki skammtímaleigu á Norðurlöndum sýnir að töluverður munur er á milli landanna þegar kemur að því …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á auknum fjölda vefveiðitilfella (e. phising) þar sem gestir fá skilaboð, m.a. í gegnum WhatsApp, SMS eða tölvupóst, …

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …