[:IS]Í byrjun maímánaðar var hrint af stað samstarfsverkefni Hertz, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Sjóvá um sérhannað ökupróf fyrir ferðafólk. Verkefnið gengur út á að allir sem leigja bíl hjá Hertz þurfa að horfa á myndband og taka í kjölfarið rafrænt próf og er bílaleigubíll ekki afhentur fyrr en leigutaki hefur staðist prófið.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, setti verkefnið formlega af stað með því að þreyta prófið og stóðst það villulaust. Landsbjörg mun halda utan um verkefnið og verður prófið aðgengilegt á vef Safetravel.
Bílaleigan Hertz hefur verið öflug í forvarnarstarfi og er sífellt að leita nýrra leiða til að ná til ferðafólks og auka þannig öryggi í umferðinni. Í byrjun verður ökuprófið í boði hjá útibúi bílaleigu Hertz við Flugvallarveg en í kjölfarið verður það útfært á fleiri stöðum og vonandi tekið upp hjá fleiri bílaleigum.[:]
Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …