Samstarfssamningur um starfsþróun í ferðaþjónustu

Námsbraut í Land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands og Íslenski ferðaklasinn undirrituðu í dag samstarfssamning um eflingu starfsþróunar og vettvangsnáms í ferðaþjónustu.

Undirritunin fór fram í húsnæði Íslenska ferðaklasans. Markmið samstarfsins er að efla þróun og uppbyggingu starfsþróunar og vettvangsnáms á sviði ferðaþjónustu og byggja brýr milli háskólamenntunar og atvinnugreinarinnar til að efla færni nemenda, auðvelda yfirfærslu þekkingar og koma á tengslum milli fyrirtækja og framtíðarstarfsmanna í greininni með sjálfbærni og ábyrga ferðaþjónustu að leiðarljósi.

Samningurinn byggir á samstarfi námsbrautarinnar og SAF frá 2015 í tengslum við námskeiðið Starfsþróun í ferðaþjónustu en hátt í 100 nemendur hafa í gegnum það fengið innsýn í störf og hæfnikröfur fyrirtækja í ferðaþjónustu. María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF sagðist fagna vaxandi áherslu á starfsþróun í háskólanámi og benti á að dæmi væru um að nemendur hafi fengið vinnu í gegnum þátttöku í námskeiðinu. „Þetta námskeið verður áfram kjölfesta í samstarfinu en með því að fá Náms- og starfsráðgjöf HÍ og Íslenska ferðaklasann formlega að borðinu skapast tækifæri til að taka næstu skref til að styrkja starfsþróun nemenda í ferðamálafræði enn frekar“ sagði Gunnar Þór Jóhannesson, formaður námsbrautar í Land- og ferðamálafræði og umsjónarkennari námskeiðsins.

Aðilar samkomulagsins hafa fleiri þróunarverkefni á prjónunum, svo sem að vinna að kynningu á Tengslatorgi HÍ til fyrirtækja í ferðaþjónustu (www.tengslatorg.hi.is) og efla færni leiðbeinanda sem taka á móti nemendum í vettvangsnámi. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans benti á að mikilvægt væri fyrir atvinnugreinina að vinna með fræðsluaðilum til að styrkja ímynd ferðaþjónustu sem atvinnugreinar sem getur boðið upp á spennandi og gefandi störf til framtíðar.

Bein tengsl við atvinnugreinina

Við sama tækifæri undirrituðu sex fyrirtæki og stofnanir viljayfirlýsingu um samstarf við námsbraut í Land- og ferðamálafræði HÍ. Það eru Ferðamálastofa, Meet in Reykjavík, Nordic Visitor, Íslandshótel, Bílaleigan Höldur og Katla Travel. Þessir aðilar eru bakhjarlar verkefnisins og hafa skuldbundið sig til þátttöku í námskeiðinu til næstu þriggja ára. „Það að formfesta samstarf við atvinnugreininga með þessum hætti skiptir okkur miklu máli, með því erum við að skapa þekkingarsamfélag í kringum þessa vinnu og sköpum grundvöll fyrir virkt samtal milli ólíkra aðila sem nýtist öllum til að byggja upp og gera betur“ sagði Gunnar Þór. Ávinningur fyrirtækja sem taka þátt er margvíslegur, þau sýna samfélagslega ábyrgð og taka virkan þátt í að efla grundvöll greinarinnar sem felst í vel menntuðu starfsfólki sem hefur færni til að takast á við áskoranir í greininni.

SAF fagna áframhaldandi samstarfi um verkefnið og munum halda áfram þeirri mikilvægu brúarsmíði sem nauðsynleg er milli háskólasamfélagsins, rannsókna og atvinnulífsins.

Mynd 1: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Íslenska ferðaklasanum, María Guðmundsdóttir, SAF, María Dóra Björnsdóttir, Náms- og starfsráðgjöf HÍ og Gunnar Þór Jóhannesson, Námsbraut í Land- og ferðamálafræði HÍ

Mynd 2: Sigurbjörg Sigurðardóttir, Bílaleigan Höldur, Hildur Bæringsdóttir, Meet in Reykjavík, Sjöfn Yngvadóttir, Nordic Visitor, Snorri Valsson, Ferðamálastofu, Anna Vilborg Ívarsdóttir, Katla Travel, Stefán Karl Snorrason, Íslandshótel og Gunnar Þór Jóhannesson, Námsbraut í Land- og ferðamálafræði HÍ

Tengdar fréttir

Menntadagur atvinnulífsins 2026 fer fram miðvikudaginn 11. febrúar kl. 13:00-16:00 á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni „Framtíðin kallar. Er menntakerfið að hlusta?“ …

Hópmálsókn evrópskra hótela gegn Booking.com hefur nú verið lögð formlega fram fyrir dómstól í Amsterdam. Málið snýr að kröfum um skaðabætur vegna …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Skráning á aðalfundinn og nánari dagskrá verður kynnt er nær …

Ferðaþjónustuvikan 2026 fór fram dagana 13.-15. janúar sl. en þar er áhersla lögð á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustunnar, sem og …

Okkur Íslendingum finnst gaman að lifa og njóta. Við viljum fara út að borða með vinahópnum, skjótast í rómantíska helgarferð innanlands með …

Við upphaf Ferðaþjónustuvikunnar 2026 hittust um 150 konur í ferðaþjónustu í glæsilegu heimboði Íslandshótela á Fosshótel Reykjavík. Þar voru samankomnar konur víðsvegar …