
Í ljósi útbreiðslu á kórónaveirunni (COVID-19) á undanförnum vikum hefur verið gefið út sérstakt upplýsingaplakat um hvernig hægt er að draga úr hættu á smiti. Plakatinu er ætlað að vera á áberandi stöðum og ná þannig til ferðamanna og starfsmanna í ferðaþjónustu.
Plakatið sem er á íslensku og ensku er gefið út í samstarfi Samtaka ferðaþjónustunnar, Embættis landlæknis, World Health Organization og Samtaka verslunar og þjónustu.
Félagsmenn í SAF gefa nálgast plakatið á skrifstofu samtakanna að Borgartúni 35 í Reykjavík.
Hægt er að nálgast rafrænar útgáfur hér:
Þá hvetjum við ferðaþjóna um land allt til að fylgjast með gangi mála á vef Embættis landlæknis > www.landlaeknir.is/koronaveira