Frumvarp um viðspyrnustyrki birt á vef Alþingis

Í gær 24. nóvember 2020 var frumvarp til laga um viðspyrnustyrki birt á vef Alþingis. Sjá hér. https://www.althingi.is/altext/pdf/151/s/0390.pdf

Að mörgu leyti er frumvarpið mjög líkt lögunum um tekjufallsstyrkina.

Frumvarpið gildir um einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Í frumvarpinu er lagt til að rekstraraðili geti fengið viðspyrnustyrk úr ríkissjóði vegna hvers almanaksmánaðar frá og með nóvember 2020 til og með maí 2021 að uppfylltum fjórum skilyrðum.

Markmið frumvarpsins er að styðja við rekstraraðila sem hafa orðið fyrir tekjufalli, vegna heimsfaraldursins og aðgerða stjórnvalda til að verjast heimsfaraldrinum, geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi á meðan áhrifa faraldursins gætir, varðveitt viðskiptasambönd og tryggt viðbúnað þegar úr rætist.

Skilyrðin

Skilyrðin fyrir viðspyrnustyrknum koma fram í 4. gr. frumvarpsins. Rekstraraðilar þurfa að uppfylla öll skilyrðin í 4. gr. til að eiga rétt á styrknum. Í frumvarpinu er lagt til að umsækjendur þurfi að uppfylla skilyrði um tilskilið tekjufall, skilyrði um skattskyldu á Íslandi, lágmarksstarfsemi, skilvísi á opinberum gjöldum og gögnum til Skattsins og áframhaldandi rekstur.

Umsókn og tekjufallið

Umsókn um viðspyrnustyrk skal bent til Skattsins fyrir hvern almanaksmánuð. Tekjur hans í þeim almanaksmánuði sem umsókn varðar skulu vera a.m.k. 60% lægri en í sama almanaksmánuði árið 2019. Í greinargerð frumvarpsins er tekið dæmi um að sæki rekstraraðili um styrk vegna desember 2020 skulu tekjur hans þann mánuð bornar sama við tekjur hans í desember 2019.

Í frumvarpinu er bent á að í sérstökum tilvikum kann almenn viðmiðurnartímabil að gefa mjög skakka mynd af tekjufalli rekstraraðila. Þá er heimilt að nota annað tímabil til viðmiðunar sýni rekstraraðili fram á að það gefi betri mynd af tekjufalli hans. Í greinargerð frumvarpsins er tekið dæmi um veikindi eða fæðingarorlofs rekstraraðila þá væri t.d. heimilt að miða við sama almanaksmánuð 2018. Þá er nefnt dæmi um sæki hann um styrk vegna desember 2020 þá yrði heimilt að miða við desember 2018.

Í 2. málsl. 1. tölul. 4. gr. er tekið á því ef rekstraraðili hafi hafið starfsemi eftir upphaf sama almanaksmánaðar 2019 skal miðað við meðaltekjur hans á jafn mörgum dögum og eru í þeim almanaksmánuði sem umsókn varðar frá því hann hóf starfsemi til loka október 2020. Einnig er tekið á því í 2. tölul. 4. gr. ef rekstraraðila hóf starfsemi efir 1. janúar 2020 skal umreikna tekjur þann ti´ma sem hann starfaði til loka október 2020 í árstekjur.

Fjárhæð styrksins

Í 5. gr. frumvarpsins kemur fram að styrkurinn geti numið allt að 90% af rekstrarkostnaði. Hann geti þó ekki orðið hærri en sem nemur tekjufallinu í viðkomandi mánuði. Hann verði jafnframt ekki hærri en 400 þús. kr. fyrir hvert stöðugildi hjá rekstraraðila og að hámarki 2 millj. kr. ef tekjufall rekstraraðila var á bilinu 60–80% en 500 þús. kr. fyrir hvert stöðugildi hjá rekstraraðila og að hámarki 2,5 millj. kr. ef tekjufall rekstraraðila var meira en 80%.

Fjárhæðin fundin og dæmi

Fjárhæð styrksins er því 90% af rekstrarkosntaði rekstraraðila þann almanaksmánuð sem styrkumsóknin varðar og aldrei hærri en tekjufall viðkomandi mánaðar. Skv. frumvarpinu er styrkurinn svo reiknaður út miðað við fjölda stöðugilda.

Hálft stöðugildi

Í greinargerð með frumvarpinu er tekið dæmi um rekstraraðila með hálft stöðugildi þann almanaksmánuð sem umsókn varðar getur því t.d. að hámarki fengið 200 þús. kr. styrk fyrir þann mánuð ef tekjufall hans í sama mánuði var á bilinu 60–80% eða 250 þús. kr. ef tekjufall hans var meira en 80%.

Þrjú stöðugildi

Rekstraraðili með þrjú stöðugildi gæti að hámarki fengið 1,2 millj. kr. styrk ef tekjufall hans var á bilinu 60–80% eða 1,5 millj. kr. ef tekjufall hans var meira en 80%.

Fimm stöðugildi

Rekstraraðili með fimm stöðugildi 2 millj. kr. ef tekjufall hans var á bilinu 60–80% eða 2,5 millj. kr. ef tekjufall hans var meira en 80%. Ekki er unnt að fá hærri styrk en 2 millj. kr. ef tekjufall var á bilinu 60–80% og 2,5 millj. kr. ef tekjufall var meira en 80% vegna stakra almanaksmánaða þótt stöðugildi hafi verið fleiri en fimm.

Sér regla um sjáfstætt starfandi og nákomna ættingja eiganda

Í ljósi þess að frumvarpið tekur til reksturs sem byggist fyrst og fremst á vinnuframlagi eiganda, og eftir atvikum fjölskyldu hans, þá er reiknað endurgjald til þeirra stór hluti rekstrarkostnaðar. Í ljósi tekjufalls má ætla að reiknað endurgjald hafi dregist mikið saman. Því er lagt til í 2. mgr. 5. gr. laganna að í stað reiknaðs endurgjalds fyrir þann mánuð sem er undir frá 1. nóvember 2020 til 31. maí 2021 verði rekstraraðila heimilt, en ekki skylt, að telja til rekstrarkostnaðar á því tímabili sömu fjárhæð og hann gjaldfærði vegna reiknaðs endurgjalds fyrir sama mánuð í skattframtali vegna rekstrarársins 2019.

Frádráttur

Lagt er til að lokunarstyrkur, sem rekstraraðila kann að hafa verið ákvarðaður vegna þess almanaksmánaðar sem umsókn varðar, dragist frá viðspyrnustyrk og að stuðningsgreiðslur vegna launa á uppsagnarfresti og ráðningarstyrkur dragist frá rekstrarkostnaði við útreikning á styrkfjárhæð. Tekjur vegna tekjufallsstyrks hafa ekki áhrif á viðspyrnustyrk.

Næstu skref málsins

Alþingi á eftir að taka frumvarpið til meðferðar. Samtök ferðaþjónustunnar munu skila inn umsögn um málið við meðferð þingsins. SAF biður félagsmenn að benda samtökunum á hvað megi betur fara í frumvarpinu og að svara könnun sem SAF hefur sent félagsmönnum í þeim tilgangi að afla upplýsinga um áhrif styrkjanna skv. frumvarpinu.

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …