Fjármögnun Hæfniseturs ferðaþjónustunnar tryggð til 2023

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, undirrituðu nýlega þjónustusamning um áframhaldandi starf Hæfniseturs ferðaþjónustunnar til næstu þriggja ára.

Samningurinn felur í sér áframhaldandi uppbyggingu á hæfni starfsmanna í íslenskri ferðaþjónustu með enn auknum stafrænum verkfærum í fræðslu sem og uppbyggingu þrepaskipts náms í samstarfi við fræðsluaðila. Áhersla verður á að ýta undir klasasamstarf fyrirtækja í ferðaþjónustu í fræðslu.

Samningurinn gildir til loka árs 2023. Framlög ráðuneytisins nema 50 m.kr. á ári til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem hýsir verkefnið Hæfnisetur ferðaþjónustunnar.

María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF og formaður Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins við undirritun samningsins.

Tengdar fréttir

Á dögunum fór fram fundur Nordisk Besöksnaring, samstarfsvettvangs norrænnar ferðaþjónustu, á Íslandi en þar tóku Samtök ferðaþjónustunnar á móti forsvarsmönnum ferðaþjónustusamtaka á …

Ný skýrsla SAF um samanburð á regluverki skammtímaleigu á Norðurlöndum sýnir að töluverður munur er á milli landanna þegar kemur að því …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á auknum fjölda vefveiðitilfella (e. phising) þar sem gestir fá skilaboð, m.a. í gegnum WhatsApp, SMS eða tölvupóst, …

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …