
Íslenski ferðaklasinn og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu bjóða metnaðarfullum stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þátttöku í Ratsjá fyrir höfuðborgarsvæðið. Verkefnið er unnið í samstarfi við RATA með stuðningi frá Ferðamálasamtökum höfuðborgarsvæðisins.
Ferðaþjónusta er nú í dauðafæri til að ræsa sínar mikilvægu vélar að nýju þegar sér fyrir endan á heimsfaraldri og himnarnir opnast á ný. Verum ekki bara viðbúin því sem kemur heldur ákveðum hvert við viljum fara og á hvaða forsendum. Tækifæri til sóknar á forsendum áfangastaðanna sjálfra hefur aldrei verið eins mikið og aðkallandi. Sameiginlega tökumst við á við áskoranirnar framundan og saman munum við fagna komandi sigrum.
Ljóst er að fyrirtæki í virðiskeðju ferðaþjónustunnar hafa verið í miklum ólgusjó sem vonandi fer að sjá fyrir endann á. Á næstu vikum og mánuðum er lykilatriði að halda fast um taumana, nýta sér þau úrræði sem í boði eru af hendi stjórnvalda ásamt því að nýta tímann til að efla nýsköpun, vöruþróun og stafræna ferla fyrirtækisins.
Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu. Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið í samstarfi við RATA og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt stuðningi frá Ferðamálasamtökum höfuðborgarsvæðisins.
Ratsjáin mun snerta á helstu áskorunum sem fyrirtækjaeigendur standa frammi fyrir í dag en endanleg dagskrá mun vera unnin í samstarfi við þátttakendur sem geta með kosningu haft áhrif á þá efnisþætti sem teknir verða fyrir. Listi yfir mögulega efnisþætti er að finna inní umsóknarforminu hér.
Meðal efnisþátta sem verða í boði eru: nýsköpun og vöruþróun, markaðsmál og markhópar, sjálfbærni og ábyrg ferðaþjónusta, stafræn þróun og tæknibylting fyrirtækja, breyttir tímar og tækifærin – kaupákvörðunarhringurinn, draumur stofnenda – tilgangur og markmiðasetning, heimasíður – hvernig skarar síðan mín fram úr?, jákvæð sálfræði, breytingastjórnun, vörumerkjastjórnun, endurhugsaðu viðskiptamódelið, skapandi hugsun sem verkfæri til framfara, samkeppnishæfni og sérstöðugreining, svo dæmi séu tekin.
Umsóknarfrestur er til 29. mars og verkefnið hefst með kynningafundi 13. apríl kl 15:00. Ratsjáin hefst svo formlega 20. apríl og lýkur 6.október með hléi yfir sumarmánuði. Ratsjáin samanstendur af 7 lotum með heimafundum/jafningjaráðgjöf, fræðslu og erindum, verkefnavinnu og ráðgjöf. Þátttökugjald í Ratsjána er 20.000 kr per fyrirtæki.
Alls taka 85 fyrirtæki frá sjö landshlutum þátt í Ratsjá sem hófst í janúar og líkur í apríl – Ratsjáin fyrir höfuðborgarsvæðið kemur því í beinu framhaldi af þeirri sem nú er að ljúka. Sjá má upplýsingar um ferðalag þátttakenda hér.