SAF gefa út Vegvísi um viðspyrnu ferðaþjónustu til 2025 og opna árangursmælaborð á vefnum vidspyrnan.is

Öflug endurreisn íslensks efnahagslífs eftir kórónuveirufaraldurinn veltur á hraðri viðspyrnu ferðaþjónustunnar. Um það eru allir greiningaraðilar sammála. Til að styðja við öfluga efnahagslega endurreisn hafa Samtök ferðaþjónustunnar nú gefið út Vegvísi um viðspyrnu ferðaþjónustu til 2025. 
Í Vegvísinum eru lagðar fram tillögur að aðgerðum stjórnvalda sem eru nauðsynlegar til að flýta viðspyrnu hennar, styðja við endurreisn efnahagslífs og takmarka neikvæð og langvarandi samfélagsleg áhrif faraldursins. Tillögurnar eru í 11 flokkum en höfuðáhersla er lögð á rekstrarumhverfi fyrirtækja, úrlausn skuldavanda þeirra, markaðssetningu ferðaþjónustu og skilvirkara eftirlit með ólöglegri starfsemi, enda munu þessir þættir og útfærsla stjórnvalda á þeim ráða hvað mestu um afl ferðaþjónustufyrirtækja til að ráða starfsfólk og skapa verðmæti á næstu fjórum árum. Hraðari viðspyrna verður ekki til af sjálfri sér, það þarf að skapa henni réttar aðstæður.  

Samhliða útgáfu Vegvísisins er árangursmælaborð Samtaka ferðaþjónustunnar opnað formlega.  
í  árangursmælaborðinu er fylgst með framvindu mælanlegra markmiða er tengjast viðspyrnu ferðaþjónustunnar og stefnumarkmiðum sem eru sett fram í Framtíðarsýn ferðaþjónustunnar til 2030, m.a. um verðmæti og væntanlegan arð samfélagsins af atvinnugreininni á næstu fjórum árum. Mælikvarðarnir varða leiðina næstu fjögur ár í átt að markmiðum um árangur sem þarf að vera náð árið 2025 og eru því í beinu samhengi við tillögurnar sem settar eru fram í Vegvísinum. 

Árangursrík viðspyrna veltur á ákvörðunum stjórnvalda um starfsumhverfi ferðaþjónustu 

Í september fara fram kosningar til Alþingis. Þá hefst nýtt kjörtímabil sem rammar inn þau fjögur ár þar sem mestu skiptir að ferðaþjónusta nái hröðum vexti á ný til að styðja við efnahagslega endurreisn samfélagsins. Við lok kjörtímabilsins árið 2025 verður einnig liðinn helmingur tímans sem sameiginlegur stefnurammi stjórnvalda og atvinnugreinarinnar tekur til. Ákvarðanir sem teknar verða af núverandi ríkisstjórn á næstu mánuðum og af nýrri ríkisstjórn strax í upphafi næsta kjörtímabils munu því hafa úrslitaáhrif á það hvort hraðri viðspyrnu og nauðsynlegri verðmætasköpun verður náð í ferðaþjónustu og efnahagslífinu í heild. 

Viðspyrnan helst í hendur við framgang markmiða stefnuramma um ferðaþjónustu til 2030  

Framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030, var mótuð í samvinnu Samtaka ferðaþjónustunnar og stjórnvalda haustið 2019. Yfirmarkmið stefnurammans eru að íslensk ferðaþjónusta verði leiðandi í sjálfbærri þróun og að hún sé arðsöm og samkeppnishæf atvinnugrein sem starfi í sátt við land og þjóð. Áherslur SAF í Vegvísinum og markmiðin sem sett eru í árangursmælaborðinu eru unnin í samræmi við markmið stefnurammans. 

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …