Nýr upplýsinga- og fræðsluvefur fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur þróað nýtt verkfæri fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu. Um er að ræða upplýsinga- og fræðsluvefinn goodtoknow.is sem hefur það að markmiði að auðvelda framlínustarfsfólki að veita ferðamönnum góðar og gagnlegar upplýsingar. Vefurinn nýtist sérstaklega þeim, sem hafa ekki áður starfað í ferðaþjónustu.

Á vefnum má finna ýmsar upplýsingar um áfangastaðinn Ísland, m.a. um íslensku þjóðina, landfræði, fjölda ferðamanna, áfangastaði ferðamanna og öryggisatriði. Með því að kynna sér upplýsingarnar á goodtoknow.is getur starfsfólk aflað sér grunnþekkingar um Ísland og íslenska ferðaþjónustu sem gagnast þeim í starfi.

Hugmyndin af vefnum kom frá Ferðamálastofu og var Hæfnisetri ferðaþjónustunnar falið að útfæra verkefnið. Auk Ferðamálastofu komu Áfangastaða- og Markaðsstofur landshlutanna, Safetravel og ASÍ að verkefninu. Vefurinn var einnig lagður fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu sem gáfu endurgjöf á efnið. Landsmennt, Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks styrktu verkefnið.

Fyrsta útgáfa vefsins er núna aðgengileg á ensku en til stendur að vefurinn verði einnig á íslensku.

Góð upplýsingagjöf til ferðamanna er gríðarlega mikilvæg, því áreiðanlegar og gagnlegar upplýsingar ýta undir jákvæða og örugga upplifun ferðamanna sem aftur á móti eykur ánægju þeirra.

Við hvetjum stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu til að kynna sér goodtoknow.is

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …