Framboð til stjórnar SAF starfsárin 2023 – 2025

Helgi Már Björgvinsson, Nadine Guðrún Yaghi, Rannveig Grétarsdóttir, Skarphéðinn Berg Steinarsson

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fer fram í Stykkishólmi fimmtudaginn 30. mars 2023.

Samkvæmt lögum SAF skal stjórn samtakanna skipa kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna. Annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri. Að þessu sinni er því kosið um þrjú aðalsæti í stjórn SAF til næstu tveggja ára. Kjörnefnd hefur þegar auglýst eftir framboðum til stjórnar SAF fyrir starfsárin 2021 – 2023. Rétt er að geta þess að í aðdraganda aðalfundar sagði Rannveig Grétarsdóttir sig frá störfum í kjörnefnd og gaf kost á sér til stjórnarsetu.

Fjögur framboð bárust í stjórn SAF, en þau eru í stafrófsröð:

Rafræn atkvæðagreiðsla hefst fimmtudaginn 23. mars kl. 16.00 og allar upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og aðgang að henni verða sendar félagsmönnum SAF í tölvupósti.
Atkvæðagreiðslunni lýkur að lokinni kynningu frambjóðenda á aðalfundinum í Stykkishólmi þann 30. mars n.k.

Tengdar fréttir

Ný skýrsla SAF um samanburð á regluverki skammtímaleigu á Norðurlöndum sýnir að töluverður munur er á milli landanna þegar kemur að því …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á auknum fjölda vefveiðitilfella (e. phising) þar sem gestir fá skilaboð, m.a. í gegnum WhatsApp, SMS eða tölvupóst, …

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …