Umfjöllun um ferðaþjónustu í fjármálastöðugleikariti Seðlabankans 2024/1

Seðlabankinn birti í dag ritið Fjármálastöðugleika 2024/1. Umfjöllun um ferðaþjónustu er þar í takt við það sem SAF hafa bent á undanfarin misseri. Í ritinu segir meðal annars:

  • ,,Óvissa um alþjóðlegar hagvaxtarhorfur er nokkur og mun líklega smitast yfir á innlendar útflutningsatvinnugreinar, einkum ferðaþjónustuna.“
  • ,,Sterkar vísbendingar eru um að horfur í ferðaþjónustunni fyrir þetta ár hafi versnað, meðal annars vegna jarðhræringa á Reykjanesi. Heldur hefur dregið úr spennu á vinnumarkaði og atvinnuleysi aukist lítillega.“
  • ,,Framboð á flugi til og frá landinu á fyrstu sex mánuðum þessa árs stefnir í að verða rúmlega 14% meira en það var á sama tíma á síðasta ári. Framboðið hefur sjaldan eða aldrei verið meira. Framboð á flugi, meðal annars til stórra áfangastaða, hefur aukist töluvert, sem gæti birst í lakari sætanýtingu á næstu misserum og lægri flugfargjöldum. Það myndi hafa neikvæð áhrif á afkomu flugfélaganna. Fjórði fjórðungur síðasta árs reyndist innlendu flugfélögunum erfiður. Í nóvember felldu bæði Play og Icelandair afkomuspár sínar fyrir árið úr gildi. Samhliða birtingu á ársuppgjöri í byrjun febrúar tilkynnti Play að félagið stefndi á hlutafjárútboð.“
  • ,,Mikilvægi innlendu flugfélaganna fyrir ferðaþjónustuna er verulegt en áætlað er að um helmingur ferðamanna sem koma til landsins í gegnum Keflavík fljúgi með þeim.“
  • ,,Töluvert meiri óvissa en áður er um framgang ferðaþjónustunnar en hægja mun á vexti hennar í ár. Þrátt fyrir að ferðamönnum í janúar hafi fjölgað um 8% milli ára þá fækkaði gistinóttum erlendra aðila um 10% milli ára í janúar. Eldsumbrotin á Reykjanesi virðast hafa haft meiri áhrif á greinina en í fyrstu var við búist. Fréttaflutningur erlendis, einna helst í Bretlandi, ýkti stöðuna hér á landi töluvert og hræðsla myndaðist m.a. um að ekki yrði flogið til landsins.“
  • ,,Aðdráttarafl Bláa lónsins er mikið og hefur óvissan í kringum lónið því áhrif á komur til landsins. Þróun á verðlagi hefur einnig áhrif og er Ísland nú orðið enn dýrari áfangastaður en áður vegna hækkunar verðlags hér á landi. Spár benda til þess að fjöldi ferðamanna verði svipaður eða örlítið meiri en í fyrra en hækkun verðlags hér á landi gæti orðið til þess að dvalartími ferðamanna styttist og þeir dragi úr neyslu hér á landi. Það myndi hafa neikvæð áhrif á greinina og birtast í lakari afkomu ferðaþjónustufyrirtækja.“
  • ,,Útlán bankanna til ferðaþjónustu nema nú um 8% af heildarútlánum til viðskiptamanna og tæplega 18% af útlánum þeirra til fyrirtækja. Áfram hefur dregið úr gjaldfærðri virðisrýrnun á útlánum til ferðaþjónustu og er hlutfall virðisrýrnunar af kröfuvirði útlána nú lægra en það var fyrir heimsfaraldur eða tæp 3%. Það gefur til kynna sterkari fjárhagsstöðu ferðaþjónustufyrirtækja en áður.“
  • ,,Vanskil fyrirtækja hafa lítið aukist en vanskilahlutfall fyrirtækjaútlána KMB var tæp 2,4% í lok síðasta árs og hækkaði aðeins um tíunda hluta úr prósentu á árinu. Hlutfallið mældist sem fyrr hæst hjá fyrirtækjum í gisti- og veitingarekstri, eða 4,8%, en það lækkaði um 0,8 prósentur á árinu, enda gengi ferðaþjónustufyrirtækja gott.“

Samtök ferðaþjónustunnar hafa undanfarna mánuði bent á þessa óvissu og neikvæða þróun ýmissa þátta sem lagst geti saman og orðið til þess að spár um fjölda ferðamanna og verðmætasköpun greinarinnar á árinu 2024 gangi ekki eftir. Bjarnheiður Hallsdóttir formaður SAF fjallar m.a. um þessa óvissu í grein í Morgunblaðinu í dag og bendir á að markvissra viðbragða er þörf ef efnahagsspár og áætlanir um tekjuöflun ríkissjóðs af ferðaþjónustu eiga að standast.

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …