Haustþing HOTREC
12. október - 14. október

Haustþing Hotrec, sambands hótel- og veitingasamtaka í Evrópu, fer fram í Vilnius Í Litháen dagana 12.-14. október.
Á þinginu verður m.a. fjallað um samkeppnisáskoranir í gisti- og veitingarekstri, mál í umfjöllun Evrópukerfisins og hópmálsókn hótela gegn Booking.com.
SAF eru aðili að Hotrec og taka þátt í þingum samtakanna tvisvar á ári, auk nefndastarfs og funda um einstök málefni er varða ferðaþjónusturekstur í álfunni og löggjöf á vettvangi Evrópusambandsins sem hefur áhrif á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja.
