Notendafundur SAF og Samgöngustofu með flugfélögum
16. september @ 13:30 - 15:00

Flugnefnd SAF boðar til notendafundar með Samgöngustofu þann 16. september. Á fundinum munu fulltrúar Samgöngustofu eiga opinskátt samtal við forsvarsmenn flugfélaga um þjónustu stofnunarinnar og önnur mál sem viðkoma flugrekstri og flugöryggi.
Fundurinn er aðeins opinn félagsmönnum SAF og hafa félagsmenn fengið tölvupóst með nánari upplýsingum og skráningarhlekk. Frekari upplýsingar má nálgast hjá skrifstofu SAF.