Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi öflugrar og framsýnnar hagsmunagæslu fyrir íslenska atvinnulíf, með það að markmiði að loftlagsárangur og samkeppnishæfni fari saman. Dagurinn er samstarfsverkefni SA, SAF, SVÞ, SI, SFF, SFS og Samorku.
Á dagskrá voru meðal annars niðurstöður nýrrar könnunar Gallup meðal félagsmanna SA og aðildarsamtaka, pallborðsumræður um íslenska hagsmuni í evrópsku regluverki og afhending Umhverfisverðlauna atvinnulífsins. Að lokinni sameiginlegri dagskrá voru þrjár málstofur þar sem fjallað var um sérstöðu Íslands í ETS-kerfinu, íslenska sérstöðu í orkumálum og innleiðingu umbúðaregluverks ESB (PPWR) í íslensku samhengi.
Þá hlaut Icelandair Umhverfisverðlaun atvinnulífsins fyrir markvisst umhverfisstarf, ábyrga ákvarðanatöku og mælanlegan árangur við að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar. Í rökstuðningi dómnefndar kemur m.a. fram að „Icelandair hefur sýnt hvernig umhverfissjónarmið geta haft raunveruleg áhrif á mikilvægar ákvarðanir í kjarnastarfsemi félagsins. Með því leiðir fyrirtækið með góðu fordæmi og hvatningu til annarra í atvinnugreinum þar sem umhverfisáhrif eru mikil og áskoranir flóknar, því í umhverfismálunum leynast víða tækifæri til að samhliða bæta rekstur og draga úr áhrifum á umhverfið.“
Samtök ferðaþjónustunnar óska Icelandair til hamingju með nafnbótina en áhugasamir geta lesið meira um Umhverfisverðlaunin og daginn sjálfan á vef SA.
