Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda er bent á að ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn nýrrar skattlagningar, áhrif hennar á ferðaþjónustuna hafi ekki verið metin og að gjaldið geti haft neikvæð áhrif á samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar.
SAF benda á að ferðamenn greiði nú þegar ýmsa skatta og gjöld sem ætlað er að standa undir uppbyggingu og viðhaldi innviða, meðal annars gistináttaskatt og innviðagjald á skemmtiferðaskip. Markmið fyrirhugaðs náttúru- og innviðagjalds skarist verulega við markmið þessara gjalda. Samtökin telja því að stjórnvöld þurfi fyrst að sýna fram á hvaða fjármögnunarþörf sé ómætt og hvers vegna núverandi tekjustofnar dugi ekki til.
Aukin skattheimta á viðkvæmum tíma
Í umsögninni er sérstaklega varað við áhrifum gjaldsins á samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu. Ísland sé þegar dýr áfangastaður og rekstrarumhverfi fyrirtækja hafi versnað á undanförnum árum. Afkoma ferðaþjónustufyrirtækja dróst saman um 54,6% árið 2024 og fjöldi erlendra ferðamanna hefur staðið nær í stað frá árinu 2023.
Þá benda SAF á að gjaldið geti lagst með mjög mismunandi þunga á einstakar ferðaþjónustuvörur og landsvæði. Samkvæmt útreikningum samtakanna gæti það meðal annars hækkað verð dagsferða um Gullna hringinn um allt að 45% og áhrif á fyrirtæki í Bláskógabyggð og nærliggjandi sveitarfélögum geti orðið verulega neikvæð.
Tekjurnar ekki tryggðar til uppbyggingar innviða
SAF gagnrýna jafnframt að tekjur af gjaldinu eigi að renna óskiptar í ríkissjóð, án þess að tryggt sé að þær nýtist til þeirra verkefna sem gjaldinu er ætlað að fjármagna. Samtökin telja einnig að fyrirhuguð gjaldtaka sé ekki markviss leið til álagsstýringar á viðkomandi ferðamannastöðum.
Samtökin gera auk þess athugasemdir við samræmi frumvarpsins við EES-samninginn, þar sem gjaldskyldan byggist á skattalegri heimilisfesti. Þá telja SAF að fyrirhugaður gildistökutími sé allt of skammur, enda séu ferðir fyrir sumarið 2027 þegar að stórum hluta seldar.
SAF leggja áherslu á að uppbygging innviða og náttúruvernd séu mikilvæg verkefni, en að lausnin felist í skýrari forgangsröðun og markvissri nýtingu þeirra tekna sem ferðaþjónustan skilar nú þegar, fremur en nýrri skattheimtu.