Íslensk ferðaþjónusta á World Travel Market í London

Íslensk ferðaþjónusta setti svip á World Travel Market (WTM) sem fór fram í ExCeL-sýningarhöllinni í London dagana 3.–5. nóvember. Fulltrúar SAF sóttu sýninguna og ráðstefnuna og var ánægjulegt að sjá hve vel íslensk fyrirtæki kynntu fjölbreytt framboð sitt fyrir kaupendum og samstarfsaðilum frá öllum heimshornum.

WTM er ein stærsta fagsýning ferðaþjónustunnar í heiminum, en í fyrra sóttu hana um 46.500 gestir, þar af um 5.500 kaupendur. Í ár tóku 29 íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og fjórar markaðsstofur landshlutanna þátt á sameiginlegu sýningarsvæði Íslands undir merkjum Visit Iceland.

Iðandi líf á íslenska básnum

Mikið líf var á íslenska básnum alla sýninguna þar sem fjöldi fyrir fram bókaðra viðskiptafunda kynninga og móttaka fór fram alla ráðstefnudagana. Í ár var sérstök áhersla lögð á vellíðan í víðum skilningi og tengsl hennar við íslenska náttúru, menningu og daglegt líf, allt frá heitum laugum og slökun til útivistar og ævintýra. Markmiðið er að efla ímynd Íslands sem heilsársáfangastaðar, en ný neytendaherferð Visit Iceland, AI Knittakers, var einnig kynnt á svæðinu og vakti verðskuldaða athygli.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sendiherra Íslands í Bretlandi, heimsótti íslenska básinn á miðvikudeginum og ræddi við þátttakendur og gesti. Góður rómur var gerður að ávarpi sendiherrans, en Þórdís þekkir íslenska ferðaþjónustu vel frá fyrra starfi sínu sem ferðamálaráðherra til margra ára.

Framtíð ferðaþjónustunnar til umræðu

Yfirskrift ráðstefnudagskrár WTM í ár var Resilience, rebound & reinvention: The next era of global travel og meðal umræðuefna voru breytt hegðun ferðamanna, ný tækni og gervigreind, traust, þróun áfangastaða og nýjar leiðir til vaxtar og nýsköpunar. Elín Sigurveig Sigurðardóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu og Helgi Eysteinsson framkvæmdastjóri Iceland Travel voru meðal þátttakenda í pallborðsumræðum á ráðstefnunni.

Dýrmætur vettvangur fyrir íslenska ferðaþjónustu

Fulltrúar SAF fylgdust með ráðstefnudagskránni, heimsóttu íslenska básinn og nýttu tækifærið til að hitta félagsmenn og samstarfsaðila. Á WTM hitta íslensk fyrirtæki fjölda kaupenda á skömmum tíma og þar skapast tækifæri sem skila sér í auknum viðskiptum um allt land og allt árið. Í ráðstefnunni kristallast m.a. mikilvægi fyrirvara á skattabreytingum á ferðaþjónustu þar sem fyrirtæki semja við erlenda viðskiptaaðila sína jafnvel 2-3 ár fram í tímann.

SAF óska íslensku þátttakendunum til hamingju með vel heppnaða sýningu!

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Íslensk ferðaþjónusta setti svip á World Travel Market (WTM) sem fór fram í ExCeL-sýningarhöllinni í London dagana 3.–5. nóvember. Fulltrúar SAF sóttu …

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …