Þau eru svo eftirsótt Íslandsmið

[:IS]

Gunnar Valur Sveinsson, verkefnastjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar

Umferð erlendra hópbifreiða með hópa á Íslandi er ekki ný af nálinni. Í gegnum tíðina hafa hópar ferðamanna komið til landsins með rútum, fyrst og fremst í gegnum Seyðisfjörð, ferðast um landið og farið svo til baka sömu leið. Undanfarin ár hefur borið á nýbreytni á þessu sviði þar sem hópbifreiðar skráðar innan ESB, á forræði erlendra fyrirtækja, hafa komið hingað til lands með erlenda bílstjóra og selt þjónustu sína erlendum fyrirtækjum sem sent hafa hópa hingað til lands. Sama hefur einnig átt við um erlendar ferðaskrifstofur sem hafa sent hingað erlent starfsfólk til að sinna leiðsögn erlendra hópa í samkeppni við innlenda leiðsögn sem ber virðisaukaskatt. Lögum um útsenda starfsmenn hefur ekki verið hægt að beita þar sem þau eiga aðeins við ef kaupandi þjónustu er innlendur aðili en auk þess er hópbifreið ekki skilgreind sem starfsstöð. Þá hefur eftirlit með VSK skyldu erlendra fyrirtækja ekki gengið sem skyldi, viðurlög hafa ekki verið nógu afgerandi og erlend fyrirtæki því vanvirt skráningu.
Vaxandi umsvif
Umfang erlendra ferðaþjónustufyrirtækja hefur magnast mikið undanfarin ár en segja má að samkeppnistaða þeirra hafi batnaði til muna þegar íslensk ferðaþjónusta var gerð VSK skyld 1. janúar 2016. Erlendir aðilar sem ekki eru á VSK skrá hér á landi leggja ekki VSK á sína sölu og eykur það framlegð þeirra og samkeppnisforskot. Ætla má að fjöldi erlendra hópbifreiða sem voru í starfsemi á Íslandi sumarið 2017 hafi verið um 30 talsins á móti 10 sumarið 2016. Einnig hefur erlendum ferðaskrifstofum með leiðsögumenn í skipulögðum ferðum verið að fjölga en þær skiptu tugum sumarið 2017. Ef ekkert verður að gert má gera ráð fyrir að umfangið vaxi mikið og samkeppnishæfni innlendra ferðaþjónustufyrirtækja versna. Sú erlenda starfsemi sem hér um ræðir greiðir ekki skatta og skyldur hér á landi og starfmenn eru á launum langt undir því sem kjarasamningar gera ráð fyrir.
Vandinn er víða
Norðurlönd hafa lengi tekist á við starfsemi erlendra hópbifreiða, sérstaklega frá láglaunalöndum í Austur-Evrópu. Sumarið 2017 voru 371 af 736 hópbifreiðum, eða rúmur helmingur hópbifreiða á Kaupmannahafnarsvæðinu rekin af erlendum óskráðum aðilum. Í því skyni að sporna við starfsemi erlendra aðila hafa Dönsk hópbifreiðasamtök farið þess á leit við ESB og dönsk stjórnvöld að ákvæði um takmörkun á dagafjölda hópbifreiða í öðru landi en heimalandi verði í samræmi við það sem tíðkast í vöruflutningum í nýrri flutningatilskipun ESB. Norðmenn ákváðu fyrir skömmu að fara þá leið að takmarka dagafjölda sem erlendir aðilar gætu verið með starfsemi í landinu. Sú framkvæmd var ekki samþykkt af ESA og því fóru Norðmenn þá leið að setja skilyrði um lágmarkslaun. Eftirlit á þeim vettvangi er þó aðeins mögulegt gagnvart norskum lögaðilum sem kaupa þjónustu erlendra aðila.
Bregðast þarf við
Samtök ferðaþjónustunnar og aðilar vinnumarkaðarins hafa lengi bent stjórnvöldum á mikilvægi þess að lög og reglur um starfsemi erlendra aðila hér á landi séu skýr og að eftirlit geti átt sér stað á fyrri stigum. Einnig þurfa lög um réttindi á íslenskum vinnumarkaði að ná til allra sem hér starfa, líka hópbifreiða og leiðsögumanna. Þá hefur verið bent á að þeir erlendu aðilar sem starfa hér á landi þurfa að vera á VSK skrá til að gæta jafnræðis við innlenda aðila.
Mikilvægt er að íslensk stjórnvöld átti sig á þeim alvarleika sem vinnumarkaðurinn stendur frammi fyrir ef óskráðum erlendum aðilum er gefinn óheftur aðgangur að eftirsóttum Íslandsmiðum á ferðaþjónustumarkaði. Bregðast þarf við með skýrum og ótvíræðum aðgerðum.
Gunnar Valur Sveinsson
Verkefnastjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar
Greinin birtist í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál. [:]

Tengdar fréttir

Samtök ferðaþjónustunnar hafa nú birt upptöku og kynningu frá félagsfundi afþreyingarnefndar um öryggismál í ævintýraferðaþjónustu sem fram fór var 25. september sl. …

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) boða til opins fundar um vetrarþjónustu og öryggismál á íslenska vegakerfinu. Fundurinn fer …

Síðustu vikur hefur fjöldi ferðaþjónustuaðila stigið fram og rætt stöðuna í atvinnugreininni og áhrif boðaðra skattabreytinga á rekstur ferðaþjónustufyrirtækja og verðmætasköpun greinarinnar …

Samtök ferðaþjónustunnar og Swiss Hotel Management School (SHMS) standa að rafrænni Masterclass vinnustofu miðvikudaginn 26. nóvember nk. undir yfirskriftinni Empowering Service Excellence through Leadership and Team Collaboration.  📅 26. nóvember 2025⏱️ 13:00 – 16:00📍 Í netheimum // ZOOM🎟️ 9.900 kr / 19.900 kr  …

Formaður SAF og forsætisráðherra - ferðaþjónustudagurinn 2025

Ferðaþjónustudagurinn 2025 var haldinn í Silfurbergi í Hörpu þann 23. október síðastliðinn. forsætis- og ferðamálaráðherra tóku þátt í fundinum og ræddu stöðu …

Ríkisstjórnin hefur kynnt að hækka skuli vörugjöld á ökutæki frá og með næstu áramótum. Hækkunin nemur nærri tvöföldun og mun hækka verð …