Bílaleigan Geysir í samstarf við Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

[:IS]Bílaleigan Geysir í Reykjanesbæ er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1973. Reksturinn hefur verið í núverandi mynd frá árinu 2003 og fjöldi starfsmanna er vel á fimmta tug. Fyrirtækið er með gæðavottun Vakans.
Lögð er áhersla á að allir starfsmenn vinni að því markmiði að viðskiptavinirnir séu ánægðir og fái eins persónulega og góða þjónustu eins og möguleg er
Það er alþjóðlegt yfirbragð hjá Geysi þar starfar fólk frá hinum ýmsum stöðum eins og Íslandi, Hondúras, Bandaríkjunum, Bretlandi, Litháen og Póllandi. Bílaleigan Geysir er fyrsta fyrirtækið á Suðurnesjunum sem tekur þátt í tilraunaverkefni um fræðslu í samstarfi við Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …