Hæfnisetur ferðaþjónustunnar gerir samning við Stefnu um þróun á rafrænni fræðslu

[:IS]Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur samið við Stefnu um þróun á rafrænni fræðslu fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu. Markmið með samningnum er að nýta smáforritið Veistu til að efla þekkingu framlínustarfsmanna í ferðaþjónustu. Veistu er hugbúnaður sem gefur möguleika á að útbúa skemmtilega spurningaleiki sem styðja við fræðslu. Spurningaleikjunum er síðan deilt með starfsfólki sem getur svarað þeim í snjalltækjum. Hæfnisetrið mun þróa grunnsöfn spurninga sem fyrirtæki og samstarfsaðilar Hæfnisetursins geta fengið aðgang að.
Nánar um Veistu má finna hér
Mynd: Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Hæfniseturs ferðaþjónustunnar og Jóhanna María Kristjánsdóttir frá Stefnu sem hannar hugbúnaðinn Veistu.[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …