HÍ og FA gera samning um hæfnigreiningar

[:IS]Háskóli Íslands og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hafa gert með sér samning um hæfnigreiningu sex starfa er tengjast skipulagningu fagháskólanáms við skólann. Um er að ræða störf í ferðamennsku, leikskólafræði og heilbrigðisgagnafræði en til stendur að hæfnigreina síðar störf í iðn- og tæknigreinum. Fagháskólanám er starfstengt nám á fræðasviði háskóla.  Niðurstöður úr hæfnigreiningu starfa eru nýttar til að skipuleggja fagháskólanám og við þróun raunfærnimats. Raunfærnimat snýst um að meta færni umsækjanda og bera hana saman við hæfniviðmið tiltekinna námskeiða. Slíkt mat er notað víða erlendis bæði við inntöku í nám og til styttingar náms. Með fagháskólanámi verður til aukið námsframboð fyrir einstaklinga á vinnumarkaði til að þróa sig í starfi og afla sér menntunar við hæfi.
Á mynd, Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. MYND/Kristinn Ingvarsson
Sjá nánar hérhttp://frae.is/frettir/hi-og-fa-gera-samning-um-haefnigreiningar/[:]

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …