Færniþörf á vinnumarkaði verði metin

[:IS]Sérfræðingahópur um færni- og menntunarþörf á vinnumarkaði hefur afhent Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og jafnréttismálaráðherra, skýrslu um færnispár og mikilvægi þeirra. Ráðherra var jafnframt afhent skýrsla sem Hagfræðistofnun vann fyrir hópinn þar sem eru upplýsingar um menntun, störf, atvinnugreinar og samspil þessara þátta á vinnumarkaði.
Hópurinn leggur til að formfastur rammi verði myndaður um gerð færnispár hér á landi. Í honum sátu fulltrúar frá Vinnumálastofnun, Alþýðusambandi Íslands, Hagstofu Íslands og Samtökum atvinnulífsins sem áttu frumkvæði að gerð skýrslunnar.
Sjá nánar á vef SA hér :  https://sa.is/frettatengt/frettir/faernithorf-a-vinnumarkadi-verdi-metin
Mynd: Sérfræðingahópurinn ásamt ráðherra.[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …