Fréttatilkynning: SAF harma alhæfingar um atvinnurekendur í gisti- og veitingaþjónustu

[:IS]Samtök ferðaþjónustunnar harma framsetningu fréttar í kvöldfréttum RÚV í gær þar sem skekkt mynd er dregin upp af heilli atvinnugrein. Skilja mátti á fréttinni og viðtali við fulltrúa stéttarfélagsins Eflingar að atvinnurekendur gisti- og veitingahúsa færu almennt á svig við gildandi lög og reglur til að hlunnfara starfsfólk. Ljóst er að einhliða framsetning sem þessi, þar sem alhæft er um atvinnurekendur í heilum starfsgreinum á grundvelli afmarkaðra dæma án þess að viðbragða sé leitað, er ótæk.
Innan vébanda SAF starfar fjöldi hótela, gististaða og veitingahúsa sem kappkosta að fara eftir lögum og reglum gagnvart starfsfólki og samtökin leggja mikla áherslu á fagmennsku og eðlilega viðskiptahætti meðal félagsmanna sinna. SAF starfa daglega með fjölda félagsmanna í viðkomandi greinum og reynslan sýnir að yfirgnæfandi meirihluti þeirra leggur áherslu á að fara eftir reglum sem gilda á vinnumarkaði, lögum og kjarasamningum gagnvart starfsfólki. Þá er rétt að nefna sérstaklega að SAF hefur undanfarin ár lagt sérstaka áherslu á fræðslu- og menntamál starfsfólks í ferðaþjónustu, m.a. í gegn um starf Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, þ.á.m. á gisti- og veitingastöðum.
SAF ítreka þá afstöðu sína að fyrirtæki í atvinnurekstri á Íslandi eiga að fara að fullu að kjarasamningum og lögum um vinnumarkað. Mikilvægt er að tekið sé á jaðartilvikum eins og þeim sem fjallað er um í fréttinni og SAF taka heilshugar undir mikilvægi þess að starfsfólk á íslenskum vinnumarkaði þekki vel réttindi sín og skyldur. Þar bera jafnt atvinnurekendur og starfsfólk ábyrgð og mikilvægt að samtök atvinnurekenda og verkafólks vinni í sömu átt að því markmiði. Fréttir eins og sú sem vísað er til hér að ofan, þar sem með alhæfingu er gefin skekkt mynd af heilum geira atvinnureksturs án þess að viðbragða sé leitað, eru því miður lítt til þess fallnar að færa slíkt samstarf fram á veginn heldur ýta því miður fremur undir upptakt að átökum á vinnumarkaði.
 
18. september 2018[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …