Aðalfundur SAF 2022

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2021 fór fram með rafrænum hætti fimmtudaginn 29. apríl.

Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf ásamt því að kynntar voru viðamiklar tillögur SAF í viðspyrnu ferðaþjónustunnar til ársins 2025, en hægt að kynna sér tillögurnar nánar hér að neðan.

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF, flutti ávarp ásamt því að ársskýrsla samtakanna fyrir árið 2020 var kynnt. Rétt er að hvetja félagsmenn til að kynna sér ársskýrsluna sem er bæði ítarleg og fróðleg.

Í aðdraganda aðalfundar fór fram rafræn kosning meðal félagsmanna um 3 meðstjórnendur í stjórn SAF til næstu tveggja ára. Jakob Einar Jakobsson, framkvæmdastjóri veitingahússins Jómfrúarinnar, Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og samfélagsábyrgðar Icelandair og Birgir Guðmundsson, hótelstjóri Icelandair Hotel Reykjavík Marina, hlutu kjör í stjórn SAF til næstu tveggja ára.

Á fundinum var samþykkt tillaga stjórnar SAF um að félagsgjald SAF 2021 – 2022 verði reiknað sem 60% af félagsgjaldi ársins 2020.

Þá voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi lokaritgerðir um ferðamál á Íslandi. Var þetta í 16. skipti sem SAF og Rannsóknarmiðstöð ferðamála veita nemendum í grunn- og framhaldsnámi verðlaun fyrir rannsóknir í ferðamálum.

Hér má nálgast allar upplýsingar frá aðalfundi SAF 2021:

Upptaka frá aðalfundi SAF 2021 verður aðgengileg félagsmönnum fljótlega.


Framboð til stjórnar SAF starfsárin 2021 – 2023

Samkvæmt lögum SAF skal stjórn samtakanna skipa kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna. Annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri. Að þessu sinni er því kjörið um þrjú aðalsæti í stjórn SAF til næstu tveggja ára. Kjörnefnd hefur þegar auglýst eftir framboðum til stjórnar SAF fyrir starfsárin 2021 – 2023.

Fimm framboð bárust í stjórn SAF, en þau eru í stafrófsröð:

Rafræn kosning hefst mánudaginn 26. apríl kl. 9.00 og geta félagsmenn í SAF tekið þátt í henni í gegnum Þínar síður Húss atvinnulífsins (www.atvinnulif.is).


Fagnefndir SAF starfsárið 2021 – 2022

Í aðdraganda aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar fóru fundir faghópa samtakanna fram með rafrænum hætti dagana 14., 15., 20. og 27. apríl sl.

Á fundunum voru kosnar fagnefndir fyrir starfsárið 2021 – 2022.


Fagfundir í aðdraganda aðalfundar

Í aðdraganda aðalfundar SAF fara fagfundir fram sem hér segir:

  • 14. apríl – Afþreyingafyrirtæki / Bílaleigur
  • 15. apríl – Ferðaskrifstofur / Flugfélög
  • 20. apríl – Hópbifreiðafyrirtæki / Gististaðir
  • 27. apríl – Skipaútgerðir / Veitingastaðir


Nánari upplýsingar

Allar nánari upplýsingar um aðalfund og fundi faghópa SAF er hægt að fá hjá Skapta Erni Ólafssyni, upplýsingafulltrúa SAF, í gegnum netfangið skapti@saf.is eða í síma 899-2200.

Tengdar fréttir

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn …

Daníel Pétur Daníelsson hlýtur lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF fyrir meistararitgerðina Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. …

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið …

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist jafnframt mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins …

Verkefnastjórar SAF sóttu norrænan fund hópbifreiðasamtaka (Nordic Bus & Coach) í byrjun september sem fram fór í gamla höfuðstaðnum Kaupmannahöfn. Á fundinum …

Formaður og stjórnarfólk SAF afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson, ferðamálaráðherra, ferðaþjónustukökuna með viðhöfn í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun. Með kökunni fluttu fulltrúar SAF ráðherra …