Þeir greiða sem njóta, eða hvað?

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar

Pálmi Viðar Snorrason, formaður bílaleigunefndar SAF
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF og Pálmi Viðar Snorrason, formaður bílaleigunefndar SAF.

Boðað kílómetragjald byggist á þeirri reglu að þeir greiði sem njóti eins og í núgildandi kerfi við dælu. Það virðist einfalt og sanngjarnt en í tilfelli bílaleiga verður markmiðið langsótt. Í rauninni er það svo að það eru leigjendur bílaleigubíla sem nýta vegina en ekki bílaleigurnar sjálfar. Aftur á móti í tilfelli bílaleiga er kílómetragjaldið lagt á eiganda ökutækisins þar sem þær þurfa að reyna að innheimta kostnað gjaldsins frá viðskiptavinum sínum með íþyngjandi hætti.

Varanleg skattlagning á bílaleigur gæti orðið allt að tveir milljarðar árlega

Núverandi kerfi, þar sem innheimt er við dælu af bílum sem nota tiltekna orkugjafa, er sanngjarnt enda greiða þeir sem nýta vegina. Að óbreyttu uppfyllir nýtt kerfi ekki þær kröfur að vera einfalt og sanngjarnt. Áætlað er að leigjendur bílaleigubíla aki allt að einum milljarði kílómetra á ári. Innheimtuhlutfall kílómetragjalds af vistvænum bílum hefur verið um 70%. Af fyrrgreindu má ætla að árlegur kostnaður bílaleiga af kílómetragjaldinu verði í kringum 2 milljarðar króna. Er því um að ræða viðbótarskattlagningu á mikilvægan hlekk í starfsemi ferðaþjónustunnar.

Samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar lögð að veði

Þegar einstaklingar hafa hug á að bóka sér ferðalag til Íslands bera þeir eðli málsins samkvæmt saman heildarkostnað Íslandsfarar við ferðalög til annarra landa. Einfaldleiki og fyrirsjáanleiki í verðlagningu skiptir því sköpum. Viðvarandi óvissa eða ófyrirsjáanlegar verðhækkanir vegna flókinna og íþyngjandi skatta geta hæglega fælt ferðamenn frá Íslandi og til annarra áfangastaða. Fyrir áfangastað eins og Ísland sem nú þegar er hlutfallslega dýr í alþjóðlegum samanburði mun kílómetragjald skerða samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu enn frekar.

Kílómetragjaldið mun kosta bílaleigur um 3 milljarða króna

Ef kílómetragjaldið tekur gildi á miðju sumri, á háannatíma ferðaþjónustunnar, munu bílaleigur fá reikning vegna aksturs sem ekki er hægt að innheimta afturvirkt af þegar staðfestum bókunum. Bílaleigur þurfa að koma upplýsingum til viðskiptavina með a.m.k. 12 mánaða fyrirvara annars er hætta á að gjaldið falli á bílaleigurnar sjálfar. Ferðaskrifstofur og erlendir söluaðilar hafa þegar tilkynnt að þeir muni ekki innheimta kílómetragjald, með svo skömmum fyrirvara og hafa varað við mögulegum málsóknum. Til viðbótar kemur talsverður kostnaður við tæknilega innleiðingu, nýja ferla og upplýsingagjöf. Því er ljóst að kílómetragjald, lagt á með engum fyrirvara í sumar mun líklega kosta bílaleigur um 3 milljarða króna á þessu ári. Þeir milljarðar greiðast beint úr rekstri fyrirtækjanna sjálfra þar sem ekki verður hægt að innheimta af notandanum, leigjanda bílaleigubílsins, sem á að greiða samkvæmt markmiðum frumvarpsins.

Gildistaka kílómetragjalds 1. júlí 2025 er óraunhæf

Í umsögnum Samtaka ferðaþjónustunnar, Bílgreinasambandsins, Samtaka atvinnulífsins, Félags atvinnurekenda, SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu og fleiri aðila er skýrt tekið fram að frumvarpið geri ekki ráð fyrir eðlilegum aðlögunartíma og að innleiðing þess á háannatíma sé óskynsamleg. Allt þrátt fyrir varnarorð meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar í nefndaráliti með frávísunartillögu 12. nóvember 2024 þar sem frumvarpinu til laga um kílómetragjald á ökutæki var vísað aftur til ríkisstjórnarinnar. Nefndin lagði til að því yrði frávísað þar sem skortur væri á samráði og áhrifamati og áréttaði einnig að kerfisbreyting af þessari stærðargráðu þurfi að byggja á víðtækri sátt og undirbúningi. Þessum fyrirmælum nefndarinnar hefur ekki verið fullnægt enda var frumvarpið lagt fram nær óbreytt á núverandi þingi.

Alþingi þarf að koma til móts við bílaleigur

Nú hefur Alþingi lagt fram sérlausn fyrir bílaleigur með svokölluðu daggjaldi sem er gott og vel og nauðsynlegt að slík heimild verði til staðar. Það er mikilvægt að bílaleigur eigi þess kost að geta lagt á daggjald þannig að þá sé vitað fyrirfram hvað leiga á bíl kostar og það innheimt við upphaf leigutíma viðskiptavina eða áður en hann hefst. Ýmsir annmarkar eru hins vegar á útfærslu daggjaldsins auk þess sem fjárhæð þess er ekki raunhæf og úr því þarf að bæta. Það er vel hægt ef viljinn er fyrir hendi, án þess að ríkissjóður verði af tekjum eða markmiðum frumvarpsins sé ógnað. Viljann skortir ekki hjá bílaleigum um að finna ásættanlega lausn. Alþingi þarf að skerast í leikinn, tryggja betri útfærslu kílómetragjaldsins og fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi bílaleiga.

Frestun á gildistöku kílómetragjaldsins er eini raunhæfi kosturinn

Ítrekað hefur verið bent á að ferðaþjónustan verðleggi þjónustu sína með 12 til 18 mánaða fyrirvara, þrátt fyrir það er enginn raunhæfur aðlögunartími í frumvarpinu. Það skortir einfaldlega grundvöll til að innleiða þessa nýju gjaldtöku sem hefur áhrif á alla notendur vegakerfisins þvert á atvinnugreinar. Frestun gildistöku og vandaður undirbúningur er ekki spurning um að vera með eða á móti kílómetragjaldinu. Það er spurning um ábyrga stjórnsýslu, virðingu fyrir atvinnulífinu, neytendum í landinu og þeim ferðamönnum sem sækja landið heim.

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar

Pálmi Viðar Snorrason, formaður bílaleigunefndar SAF

Greinin birtist fyrst á Vísi.is, þriðjudaginn 29. apríl 2025.

Tengdar fréttir

Samtök ferðaþjónustunnar óska eftir þátttöku ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi í könnun um sjálfbærni-, gæða- og umhverfisvottanir í greininni. Sjálfbærni, umhverfismál og gæði hafa …

Menntadagur atvinnulífsins 2026 fer fram miðvikudaginn 11. febrúar kl. 13:00-16:00 á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni „Framtíðin kallar. Er menntakerfið að hlusta?“ …

Hópmálsókn evrópskra hótela gegn Booking.com hefur nú verið lögð formlega fram fyrir dómstól í Amsterdam. Málið snýr að kröfum um skaðabætur vegna …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Skráning á aðalfundinn og nánari dagskrá verður kynnt er nær …

Ferðaþjónustuvikan 2026 fór fram dagana 13.-15. janúar sl. en þar er áhersla lögð á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustunnar, sem og …

Okkur Íslendingum finnst gaman að lifa og njóta. Við viljum fara út að borða með vinahópnum, skjótast í rómantíska helgarferð innanlands með …