Fulltrúar SAF á 90. þingi HOTREC í Osló

Fulltrúar á 90. þingi HOTREC í Osló í apríl 2025

Sjálfbærni, gervigreind og skattar á ferðaþjónustu meðal umræðuefna á þingi HOTREC, sambands hótel- og veitingasamtaka í Evrópu

Rúmlega eitt hundrað fulltrúar frá samtökum gististaða og veitingastaða í Evrópuríkjunum komu saman í Osló dagana 28.–30. apríl þegar 90. þing HOTREC, sambands evrópskra hótel- og veitingasamtaka, fór fram. Samtök ferðaþjónustunnar eru aðilar að HOTREC, en samstarfið er helsta Evrópusamstarf SAF og afar mikilvægt til að fylgjast með og hafa áhrif á löggjöf um ferðaþjónustu í Evrópusambandinu. Fjórir fulltrúar frá SAF sátu þingið að þessu sinni, formaður SAF og framkvæmdastjóri, formaður gististaðanefndar og verkefnastjóri.

Á dagskrá þingsins voru meðal annars mál sem snerta sjálfbærni í hótel- og veitingarekstri, þróun í notkun gervigreindar í ferðaþjónustu og áhrif nýrra og fyrirhugaðra laga á vettvangi Evrópusambandsins. Þar má t.d. nefna breytingar á pakkaferðalöggjöfinni og kröfu um endurnýtanlegar umbúðir. Þá var fjallað um áform norskra stjórnvalda um álagningu gistináttaskatts, en fram kom að sveitarfélög og almenningur í Noregi hafa snúsit gegn hugmyndunum vegna áætlaðra neikvæðra áhrifa skattsins.Þá var einnig fjallað um nýja neytendahegðun og hvernig fyrirtæki í veitinga- og gistigeiranum geta brugðist við breyttum væntingum gesta og viðskiptavina.

Tækifæri og áskoranir í gervigreindarþróun fyrir hótel og veitingastaði

Á þinginu var fjallað sérstaklega um vaxandi hlutverk gervigreindar og tækifæri og áskoranir sem hún skapar í ferðaþjónustu og rekstri gististaða. Fjallað var um hvernig tæknin getur einfaldað þjónustu, bætt gæði kynningarefnis og aukið skilvirkni í markaðssetningu og viðmóti við viðskiptavini. Meðal annars var sýnt hvernig hægt er að nýta gervigreind til að útbúa persónubundnar lýsingar á herbergjum, myndefni og stutt myndbönd fyrir samfélagsmiðla. Umfjöllunin að þessu sinni var mjög á praktískum grunni, enda mikilvægt að fyrirtæki í ferðaþjónustu geti byrjað að nýta tæknina í einhverjum mæli með þeim tólum sem þegar eru í boði.

Sjálfbær framtíð í ferðaþjónustu

Einnig var fjallað um sjálfbærni og kröfur um sjálfbæran rekstur í gisti- og veitingarekstri. Fjallað var um framtíðarsýn „Net Positive Hospitality“, að ferðaþjónustan skili meira til samfélagsins og umhverfisins en hún tekur. World Sustainable Hospitality Alliance kynnti ný viðmið og mælikvarða sem ætlað er að styðja fyrirtæki í átt að sjálfbærari starfsemi. Meðal verkefnanna eru sameiginlegir umhverfismælikvarðar fyrir gististaði og nýtt aðgengilegt menntakerfi fyrir starfsfólk hótela.

Stefnumótun Hotrec og Evrópusambandsins fyrir framtíðina

Þingið markaði einnig upphaf stefnumótunar fyrir næstu skref HOTREC og aðildarsamtakanna í Evrópu. Mikil áhersla var lögð á að Evrópusambandið og aðildarríki þess þurfi að styðja betur við smærri fyrirtæki í greininni, sérstaklega með einfaldara regluverk og fjárhagslegum úrræðum til að hrinda í framkvæmd grænum og stafrænum umbreytingum.

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …