Þann 19. nóvember hélt gististaðanefnd SAF opinn fagnefndarfund þar sem farið var yfir helstu þróun í rekstri gististaða, nýjustu gögn um skammtímaleigu á Íslandi og verkefni nefndarinnar á árinu. Fundarstjórn var í höndum Ólafar Guðmundsdóttur, hótelstjóra Hilton Reykjavík Nordica og formanni nefndar, sem bauð gesti velkomna og lagði áherslu á mikilvægi opins samtals í atvinnugrein sem tekur hröðum breytingum.
Straumar og stefnur í rekstri gististaða
Fyrstur til að taka til máls var Scott Dahl, prófessor við Les Roches háskólann og sérfræðingur í tekjustýringu, sem fór yfir helstu strauma og stefnur í rekstri gististaða. Hann benti á að gestir velji í auknum mæli gistingu út frá upplifun frekar en hefðbundnum þáttum á borð við herbergjaflokkun eða verð. Persónubundin þjónusta og markviss miðlun upplýsinga skili bæði fleiri beinum bókunum og auknum tekjum. Samtímis sé meiri áhersla lögð á beinar bókanir þegar horft er til tekjustýringar og að beinar bókanir séu að endurheimta vægi í samkeppni við alþjóðlegar sölurásir.
Staða skammtímaleigu á Íslandi
Í framhaldinu kynntu Camilo Schmid Rivas og Cindy Doan frá AirDNA nýjustu tölur um stöðu skammtímaleigu (STR) á Íslandi. Gögn AirDNA sýna að eftirspurn eftir STR hefur náð sér á strik með metári í gistinóttum árið 2025, þó svo að farið sé að hægjast á vextinum. Framboð jókst hægar á Íslandi en annars staðar í Evrópu en er nú komið í meira jafnvægi. Þá er höfuðborgarsvæðið enn burðarás markaðarins, bæði í framboði og eftirspurn, með yfir helming allra bókana. Gestir frá Bandaríkjunum eru stærsti hópur þeirra gesta sem nýta sér skammtímaleigu á Íslandi og leiguíbúðir á lægra verðbili með færri svefnherbergjum eru með hæsta nýtingu. AirDNA kynnti einnig horfur fyrir árið 2026 og 2027 og kom þar fram að bókunarmynstur ársins byrjar rólega en styrkist inn í sumar, auk þess sem sólmyrkvi í ágúst 2026 hefur þegar sýnileg áhrif á bókanir og verð í Reykjavík.
Verkefni gististaðanefndar á árinu
Að lokum fór Ágúst Elvar Bjarnason, verkefnastjóri hjá SAF, yfir helstu verkefni gististaðanefndar á árinu. Hann rakti vinnu nefndarinnar við einföldun regluverks, eflingu samkeppnishæfni íslenskra gististaða og aukið samstarf við systursamtök á Norðurlöndum, meðal annars í sameiginlegri vinnu um stöðu skammtímaleigu. Þá var fjallað um mikilvægi þátttöku SAF í HOTREC, sambands evrópskra hótel- og veitingasamtaka, en HOTREC hafa meðal annars leitt hópmálsókn gegn Booking.com. Einnig var rætt um komandi verkefni nefndar s.s. þjónustufundi með eftirlitsaðilum og aukið samtal við félagsmenn.
Fundinum lauk með opnum umræðum þar sem þátttakendur ræddu áskoranir og tækifæri í greininni og komu á framfæri tillögum að áherslum nefndarinnar fyrir komandi misseri.
Gististaðanefnd SAF þakkar fyrir þátttökuna á fundinum.
Efni frá fundinum
Glærur frá erindum Scott Dahl og Ágústs má nálgast hér fyrir neðan. Til að nálgast glærur frá AirDNA er félagsmönnum bent á að hafa samband við Cindy Doan hjá AirDNA (cindy.doan@airdna.com)
Erindi Scott Dahl um strauma og stefnur í rekstri gististaða