Fimm fulltrúar kjörnir í stækkaða stjórn SAF

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda ferðaþjónustuaðilar öllu vanir í þeim efnum.

Sú breyting varð á stjórn samtakanna að stjórnarfólki var fjölgað úr sjö í níu, sem gefur færi á að endurspegla betur grósku og fjölbreytni í atvinnugreininni sem og aukið mikilvægi ferðaþjónustu fyrir samfélagið, en greinin hefur stækkað gríðarlega á liðnum árum.

Pétur Óskarsson endurkjörinn formaður

Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri Kötlu DMI var endurkjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og auk hans voru fimm nýir stjórnarmenn kjörnir á aðalfundinum. Þau Bergþór Karlsson stjórnarformaður og eigandi hjá Höldi ehf. – Bílaleigu Akureyrar, Gísli S. Brynjólfsson forstöðumaður markaðsmála hjá Icelandair, Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá Bláa lóninu og Ragnheiður Hafstað Hauksdóttir framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Keahótelum vory kjörin til tveggja ára og Ragnhildur Ágústsdóttir, stofnandi og eigandi Lava Show til eins árs.

Niðurstöður í stjórnarkjörinu voru eftirfarandi:

  1. Helga Árnadóttir, frkvstj. hjá Bláa lóninu hlaut 165.442 atkvæði eða 98,72% greiddra atkvæða (81,55% af heildarfj. atkv.)
  2. Bergþór Karlsson, stjórnarform./eigandi hjá Höldi ehf. hlaut 133.990 atkvæði eða 79,96% greiddra atkvæða (66,04% af heildarfj. atkv.)
  3. Gísli S. Brynjólfsson, forstöðumaður hjá Icelandair hlaut 129.078 atkvæði eða 77,03% greiddra atkvæða (63,62% af heildarfj. atkv.)
  4. Ragnheiður Hafstað Hauksdóttir, frkvstj. hjá Keahótelum hlaut 125.872 atkvæði eða 75,11% greiddra atkvæða  (62,04% af heildarfj. atkv.)
  5. Ragnhildur Ágústsdóttir, stofnandi og eigandi Lava Show hlaut 125.059 atkvæði eða 74,63% greiddra atkvæða (61,64% af heildarfj. atkv.)

Við óskum nýkjörnu stjórnarfólki til hamingju með kjörið, en fyrir í stjórn SAF sitja þau Rannveig Grétarsdóttir eigandi Eldingar, Sævar Guðjónsson eigandi Ferðaþjónustunnar Mjóeyri og Stefán Gunnarsson eigandi GJ Travel.

Gróska í grasrótinni

Auk stjórnarkjörs fóru faghópafundir fram að morgni aðalfundardags eins og hefðbundið er, en á fundunum voru 45 fulltrúar kjörnir í fagnefndir Samtaka ferðaþjónustunnar, en fagnefndirnar gegna mikilvægu hlutverki í starfi samtakanna við umfjöllun um mál sem horfa sérstaklega að einstökum ferðaþjónustugreinum.

Í upphafi aðalfundar ræddi Pétur Óskarsson við þau Bjarna Benediktsson framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, Ernu Björg Sverrisdóttur aðalhagfræðing Arion banka og Rannveigu Grétarsdóttur eiganda Eldingar um stöðu og horfur í ferðaþjónustu í samhengi áskorana í rekstrarumhverfi fyrirtækja innanlands sem og samkeppnishæfni og viðskiptaumhverfi á alþjóðaettvangi.

Samtök ferðaþjónustunnar fagna þrjátíu ára afmæli að tveimur árum liðnum og virkilega ánægjulegt að sjá á aðalfundinum í ár hve sterkur áhugi er á starfi samtakanna meðal félagsfólks og mikil gróska í grasrót þeirra.

—

Ljósmynd: Á myndinni má sjá þau sem hluti kjör í stjórn og fagnefndir SAF á aðalfundi samtakanna 2026.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …