Aukning í vefveiðitilfellum

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á auknum fjölda vefveiðitilfella (e. phising) þar sem gestir fá skilaboð, m.a. í gegnum WhatsApp, SMS eða tölvupóst, sem virðast tengjast bókunum þeirra á Booking.com. Líklegt er að þessi aukning tengist að einhverju leiti gagnaleka hjá Booking.com í apríl síðastliðnum.

Í skilaboðunum er viðkomandi gjarnan beðinn um að staðfesta greiðsluupplýsingar, greiða bókun að nýju eða smella á hlekki vegna meintra greiðsluvandamála. Í mörgum tilvikum innihalda skilaboðin raunverulegar bókunarupplýsingar og eru því mjög sannfærandi.

SAF hvetja ferðaþjónustuaðila til að:

  • Vara gesti við að deila aldrei greiðsluupplýsingum utan opinberra greiðsluleiða

SAF eru jafnframt að safna upplýsingum um þessi tilfelli til að kortleggja umfang vandans. Þeir aðilar sem verða varir við slík tilvik eru hvattir til að senda inn skjáskot eða lýsingar á atvikum á agust@saf.is.

Tengdar fréttir

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …