Samnorrænn fundur ferðaþjónustusamtaka

Á dögunum fór fram fundur Nordisk Besöksnaring, samstarfsvettvangs norrænnar ferðaþjónustu, á Íslandi en þar tóku Samtök ferðaþjónustunnar á móti forsvarsmönnum ferðaþjónustusamtaka á Norðurlöndunum.

Nordisk Besöksnaring er vettvangur þar sem SAF eiga reglulegt samtal við systursamtök sín frá Danmörku (Horesta), Noregi (NHO Reiseliv), Svíþjóð (Visita) og Finnlandi (Mara). Þátttaka SAF í samstarfinu er mikilvægur liður í alþjóðasamstarfi samtakanna, enda standa ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlöndunum frammi fyrir mörgum sambærilegum áskorunum þótt aðstæður séu ólíkar á milli landa.


Á fundinum var farið yfir stöðu og horfur í ferðaþjónustu á Norðurlöndum og rætt um sameiginleg hagsmunamál greinarinnar. Þá kynntu SAF einnig nýja skýrslu um samanburð á regluverki skammtímaleigu á Norðurlöndunum. Gestir fundarins fengu einnig að upplifa Norðurland sem áfangastað og kynnast þeirri breidd sem einkennir ferðaþjónustu á svæðinu. Á meðan heimsókninni stóð fengu gestir meðal annars að kynnast því hvernig náttúra, menning og afþreying mynda saman sterka heildarupplifun fyrir ferðamenn.


Alþjóðlegt samstarf hefur á undanförnum árum orðið sífellt mikilvægari þáttur í starfi SAF. Í gegnum norrænt og evrópskt samstarf gefst tækifæri til að fylgjast með þróun mála í nágrannalöndum, bera saman rekstrarumhverfi og stefnumótun, sem og að sækja og deila þekkingu. Slíkt samtal skiptir ekki síst máli þegar sambærilegar áskoranir blasa við, svo sem í tengslum við samkeppnishæfni, skattheimtu, vinnumarkað og regluverk.

Fundir Nordisk Besöksnaring eru lokaðir fundir en félagsmenn SAF geta ávallt komið ábendingum á framfæri við skrifstofu samtakanna sem varða norrænt samstarf eða sameiginleg hagsmunamál ferðaþjónustu á Norðurlöndum.

Tengdar fréttir

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Bein útsending frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Suðurlands og Markaðsstofu Reykjaness um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …