Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?
Fundirnir fara fram á mikilvægum tímapunkti en á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf um allt land. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa. Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun um land allt.
Fyrri hluti fundanna verður helgaður erindum frá Samtökum ferðaþjónustunnar og markaðsstofum viðkomandi landshluta sem hverfast um ferðaþjónustu í viðkomandi kjördæmi. Þá mun Deloitte kynna niðurstöður á greiningu sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Seinni hluti fundanna verður vettvangur beinna samtala við þingmenn kjördæmanna um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.
Fundirnir fara fram á eftirfarandi tímum:
15. október – Hótel Selfoss á Selfossi
22. október – Menningarhúsið Hjálmakletti á Borgarnesi
10. nóvember – Hof á Akureyri
18. nóvember – Sjálfstæðissalurinn á Hotel Parliament í Reykjavík (skráning og nánari upplýsingar birtast síðar fyrir þennan fund en við hvetjum fólk til að fylgjast með miðlum SAF)
Þá verða fundirnir einnig í beinni útsendingu.