Björg Dan Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri TREX ehf.

Um SAF

[:IS]

Björg Dan Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri TREX ehf.

Ég býð mig hér með fram til stjórnarsetu í Samtökum ferðaþjónustunnar.
Ég hef áhuga og metnað til að takast á við verkefnin sem að stjórn SAF stendur frammi fyrir enda mikil gróska í ferðþjónustunni en ekki síður miklar áskoranir framundan.
Ég stunda nú diplómanám við Háskóla Íslands „Góðir stjórnarhættir – Viðurkenndir stjórnarmenn“ og mun ljúka því námi í lok mars á þessu ári.
Fyrir tveimur árum hóf ég störf sem framkvæmdastjóri TREX ehf. og var þá að koma ný inn í ferðaþjónustugeirann. Mér finnst þessi geiri mjög áhugaverður en jafnframt krefjandi.
Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á félagsstörfum og verið mjög virk á þeim vettvangi. Síðastliðin ár hef ég verið sóknarnefndarformaður í Langholtskirkju, þar er umfangsmikið tónlistarstarf og mjög öflugt barnastarf. Langholtskirkja hefur glímt við mikinn fjárhagsvanda og hefur það verið mitt helsta verkefni að endurskipuleggja allan rekstur ásamt því að fara í stefnumótun vaðandi áherslur í safnaðarstarfi og starfseminni yfirleitt.
Á árunum 2001 – 2010 sat ég í framkvæmdastjórn Icepharma ehf. en á þeim tíma var ég framkvæmdastjóri neytendavörusviðs fyrirtækisins.
Ég er ein af stofnendum Félags íslenskra tannfræðinga og sat þar í stjórn til ársins 1995 og þar af formaður í tvö ár.[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …