Ólöf R. Einarsdóttir, eigandi Mountaineers of Iceland

Um SAF

[:IS]

Ólöf R. Einarsdóttir, eigandi Mountaineers of Iceland.

Ég er fædd í Reykjavík 19. mars 1962, ég er gift Herberti Hauksyni og á 2 börn Eið Smára Guðjohnsen og Viktoríu Hlíf Theodórsdóttur og 5 barnabörn.
Ég hef starfað við ferðaþjónustu síðan  1991 þegar ég kláraði  leiðsöguskóla Íslands í Kópavogi  og vann ég sem bílstjóri og leisögumaður  í ansi mörg ár samhliða skrifstofu vinnu. Árið 1998 hóf ég störf hjá innanlandsdeild Úrvals Útsýnar síðar Ferðaskrifstofu Íslands við móttöku á ferðamönnum til Íslands, tilboðsgerð í allar tegundir hópa, hvataferðir, sérhópar, einstaklingar, reikningar, frágangur og vinnsla.
Árið 2001 skipti ég um vettvang og fór á ferðaskrifstofuna Atlantik og vann að uppbyggingu hvataferðadeildar og framkvæmd skemmtiferðaskipa.
Undanfarin 12 ár hef ég unnið sem framkvæmdarstjóri við fyrirtæki okkar Herberts Fjallamenn ehf. /Mountaineers of Iceland og hefur það kallað á alla mína athygli, reynslu og kunnáttu. Veiti nú Mountainees of Iceland forstöðu. Hef fullan áhuga fyrir eflingu ferðaþjónustunnar í heild sinni og ég tel að með mína reynslu geti ég unnið mjög gott starf fyrir félagsmenn SAF.
Það er von mín að starfskraftar mínir geti haft eitthvað að segja um málefni sem tengjast ferðaþjónustunni almennt, eflingu á gæðum, uppbyggingu ferðamannastaða, eflingu á menntun og þjálfun nýrra starfsmanna ,auðga og styrkja þá sem fyrir eru.
Það hringja hjá okkur öllum viðvörunarbjöllur um fjölda ferðamanna sem munu halda áfram að koma til landsins og við þurfum að bregðast við því, þar kemur til að innviði fyrirtækja okkar allra séu tilbúin,  vegamál ,salernismál , öryggi ferðamanna og  starfsumhverfi þeirra sem starfa í ferðaþjónustu.
Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem býr til flest ný störf í dag. Ég er tilbúin til starfa í stjórn SAF.
Takk fyrir mig!
Ólöf Einarsdóttir[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …