Sævar Freyr Sigurðsson, stofnandi og eigandi Saga Travel ehf.

Um SAF

[:IS]

Sævar Freyr Sigurðsson, stofnandi og eigandi Saga Travel ehf.

Ég stofnaði Saga Travel á Akureyri árið 2009 og hef stýrt og fylgt félaginu upp í að verða öflugt og rótgróið ferðaþjónustufyrirtæki. Í dag er ég einn eiganda Saga Travel sem er ferðaskrifstofa sem rekur sínar eign dagsferðir og einnig eigandi GeoIceland sem rekur dagsferðir frá Reykjavík.
Reynslan af rekstri ferðaskrifstofu með pakkalausnir til ferðamanna, ásamt eigin dagsferða frá Akureyri, Mývatni og Reykjavík tel ég að nýtist SAF vel. Ég tel mig geta með reynslu minni, sett upp hin ýmsu gleraugu og þannig horft á málefni SAF út frá mismunandi þörfum aðildarfélaga, s.s. ferðaskrifstofa, dagsferða, rekstraraðila á höfuðborgarsvæðinu og ekki síst þeirra sem hafa höfuðstöðvar á landsbyggðinni.
Fram undan eru gríðarlegar áskoranir á landsvísu. Hagræðingar og uppbygging innviða er þörf og sótt er af yfirgengilegri hörku að atvinnugreininni úr ýmsum opinberum áttum.  Á landsbyggðinni er öllum ljóst, að komi ekki til gagngera viðhorfsbreytinga hjá opinberum aðilum er varðar fjölgunar eða betri dreifingar ferðamanna á ársgrundvelli til allra landshluta þá mun í afar slæm mál stefna.
Fjölbreytt tækifæri eru til staðar til að uppskera á hátt sem víðtæk sátt er um.  Fái ég brautargegni mun ég leggja mitt á vogarskálarnar til að vegur ferðaþjónustunnar á landsvísu haldi áfram að dafna og að tekist verði á við verkefni sem SAF mætir á lausnarmiðaðan hátt, af einurð og festu.[:]

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …