Má bjóða þínu fyrirtæki háskólanema í starfsheimsókn?

[:IS]

– samstarfssamningur SAF og HÍ um starfsþróun í ferðaþjónustu

 

Námsbraut í Land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar standa saman að námskeiði í Starfsþróun í ferðaþjónustu sem kennt verður í fimmta skipti vorið 2019.
Hluti námskeiðsins felst í því að nemendur heimsækja tvö fyrirtæki og afla sér upplýsinga um starfssemi, störf, menntun og hæfnikröfur innan þeirra og vinna svo verkefni um tengsl háskólamenntunar og atvinnugreinarinnar. SAF mun hafa milligöngu um að koma nemendum í starfskynningu í fyrirtækjum. Nemendur vinna saman í pörum og gert er ráð fyrir u.þ.b. 5-8 klst. viðveru nemenda. Lagt er upp með að heimsóknir fari fram dagana 18. – 22. febrúar.
Þau fyrirtæki sem vilja bjóða nemum í starfsheimsókn er bent á að hafa samband við Maríu Guðmundsdóttur, fræðslustjóra SAF, á netfanginu maria@saf.is sem fyrst.
Um er að ræða hagnýtt námskeið fyrir nemendur á 3. ári í ferðamálafræði, sem hefur að markmiði að gera nemendum kleift að yfirfæra þekkingu og hæfni úr grunnnámi í ferðamálafræði í hagnýtt umhverfi ferðaþjónustunnar. Nemendur fá innsýn í starfsemi fyrirtækja á sviði ferðaþjónustu og vinna verkefni sem efla starfshæfni þeirra eftir að námi lýkur með áherslu á færni til að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu. Ætlast er til þess að nemendur kynni sér starfsemi tiltekinna fyrirtækja og afli sér þekkingar á ólíkum störfum í ferðaþjónustu.
Oft hefur verið bent á að það vanti sterkari tengingar milli háskólanáms í ferðamálafræði og atvinnugreinarinnar. Þetta námskeið er liður í að skerpa á þeim tengslum og um leið að brúa bilið milli fyrirtækja í ferðaþjónustu og mögulegs framtíðarstarfskrafts þeirra.
Nánari upplýsingar: 

[:]

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …