Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fer fram fimmtudaginn 14. mars á Fosshótel Húsavík. Allar nánari upplýsingar um fundinn er að finna HÉR.

Samkvæmt lögum SAF skal stjórn samtakanna skipa kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna. Kjörnefnd hefur þegar auglýst eftir framboðum til stjórnar SAF fyrir starfsárin 2019 – 2021.
Samkvæmt lögum SAF skal stjórnarkjöri þannig háttað að annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri. Stjórnarmaður sem kjörinn var til tveggja ára á síðasta aðalfundi hætti störfum á árinu, því eru 4 meðstjórnendur í kjöri á aðalfundinum. Þá verður ekki um formannskjör að ræða þar sem á síðasta aðalfundi SAF var formaður kjörinn til tveggja ára.

Framboðsfrestur rann út fimmtudaginn 7. mars og skiluðu 7 aðilar inn framboði í stjórn SAF fyrir starfsárið 2019-2021. Á aðalfundinum skal kjósa 4 frambjóðendur.
Frambjóðendurnar eru eftirtaldir í stafrófsröð:

Með því að smella á nöfn frambjóðenda er hægt að sjá frekari kynningu á þeim.
Kjörnefnd SAF:

  • Eva María Þórarinsdóttir Lange, Pink Iceland, formaður – eva@pinkiceland.is
  • Ingibjörg G. Guðjónsdóttir, Íslenskum fjallaleiðsögumönnum – inga@icelandrovers.is
  • Sævar Skaptason, Hey Iceland – saevar@heyiceland.is