Nemar í Land- og ferðamálafræði við HÍ heimsóttu SAF

[:IS]Námsbraut í Land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands og  Samtök ferðaþjónustunnar standa saman að námskeiði í Starfsþróun í ferðaþjónustu sem kennt er í fimmta skipti vorið 2019. SAF auglýstu eftir fyrirtækjum til að taka nema í starfsþjálfun til að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu og fengu  góð viðbrögð frá fyrirtækjum félagsmanna. Hver nemendi heimsótti tvö fyrirtæki innan SAF og var mikil ánægja meðal nemenda með heimsóknirnar.
Þá heimsóttu nemendurnir Hús atvinnulífsins ásamt kennara námskeiðsins; Rósbjörgu Jónsdóttur og fengu fræðslu um helstu starfsemi sem þar fer fram auk þess sem María Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi SAF kynnti starfsemi og fræðslumál á vegum samtakanna fyrir nemendum. Þá ræddu Vilborg Helga Júlíusdóttir, hagfræðingur SAF  og María við nemendur um hugsanleg rannsóknarverkefni í ritgerðum sem gætu komið að góðum notum í greininni.
SAF þakka eftirtöldum fyrirækjum fyrir góðar móttökur á nemum í ár:
Arctic Adventures, Bílaleiga Hertz, Elding hvalaskoðun, Go West, Katla Travel, Nordic Visitor, Icelandair Hotel Marina, Meet in Reykjavík og  Mountaineers.
 
[:]

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …