Ferðamálaráðherra og menntamálaráðherra koma saman með ferðaþjónustunni í dag

[:IS]Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra gera samspil atvinnulífs og menntamála að umfjöllunarefni á viðburði sem fram fer á morgun, þriðjudaginn 19. mars kl. 14.45 á Grand hóteli Reykjavík, Hvammi. Það eru Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SAF sem boða til viðburðarins.
Ferðamálaráðherra setti Hæfnisetur ferðaþjónustunnar á fót árið 2017 en það er samstarfsverkefni aðila vinnumarkaðarins, fræðsluaðila og stjórnvalda um heildstæðar lausnir og úrbætur til að auka hæfni starfsmanna í ferðaþjónustu á Íslandi. Starfsemin er tryggð til ársloka 2020 en atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fjármagnar verkefnið.
Menntamálaráðherra hefur lagt fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi með það að markmiði að tryggja að íslenska verði áfram notuð á öllum sviðum íslensks samfélags. Við þessu vill ferðaþjónustan bregðast. Á viðburðinum verður kynnt verkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar og stjórnvalda til að efla samskipti, þjónustu og íslenskukunnáttu í ferðaþjónustu hér á landi.
Dagskrá:

  • Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF
  • Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra
  • Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar
  • Stefán Karl Snorrason, starfsþróunar- og gæðastjóri hjá Íslandshótelum, og Ionut-Daniel Stan, matreiðslumaður á Fosshóteli Reykholti, frá Rúmeníu

[:]

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …