Ársskýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar 2018 er komin út

[:IS]Árið 2018 vann Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hörðum höndum að því að aðstoða og koma á tengslum fræðsluaðila og fyrirtækja. Á árinu var samið við um 70 fyrirtæki í ferðaþjónustu með tæplega 2.000 starfsmenn. Tengt því verkefni er þróun starfsfólks Hæfnisetursins á rafrænum tækjum til að nota í fræðslu, meðal annars með vinnslu fagorðalista, þjálfunarefnis og smáforrita. Þá fundaði Hæfnisetrið með ótal fyrirtækjum og starfsfólki á árinu í eins konar rýnihópum sem Hæfnisetrið setti á stofn til að meta þarfir ferðaþjónustunnar fyrir breytt eða nýtt nám í formlega skólakerfinu. Áherslurnar á árinu voru að smíða, prófa og þróa.
Tímaás prýðir ársskýrsluna þar sem stiklað er á stóru yfir starfsemina árið 2018.
Smelltu hér til að nálgast ársskýrslu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.[:]

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …