„Gott starfsfólk er lykilatriði fyrir rekstur ferðaþjónustufyrirtækja og góða upplifun ferðamanna"

[:IS]

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra gerðu samspil atvinnulífs og menntamála að umfjöllunarefni á mjög ánægjulegum viðburði sem fram fór í á Grand hóteli Reykjavík í gær. Það voru Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SAF sem boðuðu til viðburðarins til að kynna fagorðalista ferðaþjónustunnar sem miðar að aukinni fræðslu til erlends starfsfólks um íslenskt mál.
Í ræðu sinni sagði Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, gott starfsfólk vera lykilatriði fyrir rekstur ferðaþjónustufyrirtækja og góða upplifun ferðamanna.
„Orðalykillinn er mikilvægt tæki til að efla samskipti starfsfólks og því samhliða að auka ánægju þess og hæfni – og þar með gæði íslenskrar ferðaþjónustu.“
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur lagt fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi með það að markmiði að tryggja að íslenska verði áfram notuð á öllum sviðum íslensks samfélags. Í ræðu sinni sagðist ráðherra fagna því frumkvæði sem ferðaþjónustan sýni með því að bjóða íslenskufræðslu með þessum hætti.
„Við viljum snúa vörn í sókn fyrir íslenskuna og þetta er lofsvert framtak sem ég tel að muni bæta þjónustu og stuðla að betri samskiptum.“
Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, afhenti Stefáni Karli Snorrasyni, starfsþróunar- og gæðastjóra hjá Íslandshótelum, fagorðalistann á veggspjaldi en hann er jafnframt tiltækur í ítarlegri útgáfum á vefnum.
Mynd 1: Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamálaráðherra og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF
Mynd 2: Stefán Karl Snorrason, starfsþróunar- og gæðastjóri hjá Íslandshótelum og Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar
 

[:]

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …