Raunfærnimat til styttingar náms á Háskólabrú Keilis

[:IS]Haustið 2019 munu Fræðslusetrið Starfsmennt og Keilir bjóða raunfærnimat í nokkrum greinum Háskólabrúar í þriðja sinn. Þau sem standast raunfærnimatið geta stytt leiðina til lokaprófs af Háskólabrú Keilis eins og sagt er frá í þessum fróðleiksmola.
Ef þú ert 23 ára eða eldri, með samtals þriggja ára almenna starfsreynslu og hefur lokið að lágmarki 70 einingum úr framhaldsskóla gætirðu átt erindi í raunfærnimat. Komdu og kynntu þér málið! Kynningarfundur er áætlaður fimmtudaginn 10. október kl. 17:00 hjá Starfsmennt í Skipholti 50b, Reykjavík.
Hvað er Háskólabrú Keilis?
Háskólabrú Keilis býður upp á nám fyrir einstaklinga sem hafa ekki lokið stúdentsprófi og uppfylla nemendur að loknu náminu inntökuskilyrði í allar deildir Háskóla Íslands. Auk þess hafa útskrifaðir nemendur fengið inngöngu í nám í öðrum háskólum bæði hérlendis og erlendis. Nánari upplýsingar er að finna á www.keilir.net/haskolabru.[:]

Tengdar fréttir

Á dögunum fór fram fundur Nordisk Besöksnaring, samstarfsvettvangs norrænnar ferðaþjónustu, á Íslandi en þar tóku Samtök ferðaþjónustunnar á móti forsvarsmönnum ferðaþjónustusamtaka á …

Ný skýrsla SAF um samanburð á regluverki skammtímaleigu á Norðurlöndum sýnir að töluverður munur er á milli landanna þegar kemur að því …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á auknum fjölda vefveiðitilfella (e. phising) þar sem gestir fá skilaboð, m.a. í gegnum WhatsApp, SMS eða tölvupóst, …

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …